Söngkeppni MA 2012

24. February 2012 kl. 14:36 | | VefTV |

Á því leikur enginn vafi að einhver magnþrungnasta tónlistarveisla sem haldin hefur verið á síðari árum fór fram í Menntaskólanum á Akureyri í gærkvöldi.

Húsband kvöldsins var hljómsveitin Scvtil Wum sem þótti svo framúrskarandi að sjálfur Inspector Scholae sagði: “Á þeim fjórum árum síðan ég hóf nám við þennan skóla, hefur aldrei verið jafn flott hljómsveit.” Meðlimir hljómsveitarinnar eru hinir gullfallegu og hjartahlýju: Tandri Gauksson, Hrólfur Ásmundsson, Jón Haukur Unnarsson, Ármann Óli Halldórsson og síðast en ekki síst hinn ógleymanlegi Gunnar Atli Eggertsson. Þeir gengu inn á sviðið prúðbúnir í lúðrasveitabúningum og mátti víða sjá kjálka busastúlkna síga niður í gólf er þær sáu trommusnillinginn og módelið Jón Hauk Unnarsson klæddan í bláan einkennisbúning.

Hljómsveitin hóf kvöldið með inngangi þar sem að þeir sýndu fram á tónsnilli sína og yfirburði í hljóðfæraleik en að því loknu hófst keppnin fyrir alvöru.

Hvert atriðið þótti bera af öðru og þurfti áreiðanlega dómara til að skera úr um hver færi með sigur úr býtum. Dómarar kvöldsins voru Heimir Bj (kennari við Menntaskólann), Arna Vals (sönglistakona) og Haukur Tryggvason (á Græna hattinum).

Sigurvegari söngkeppninnar, Móheiður Guðmundsdóttir í 3.F, flutti lagið Bang-Bang (My Baby Shot Me Down) við gítarundirleik Tandra Gaukssonar í 4.X. Móheiður mun því keppa fyrir hönd Menntaskólans á Akureyri í Söngkeppni Framhaldsskólanna sem haldin verður í apríl á þessu ári. Ekki hefur enn verið skorið úr um hvar skuli halda söngkeppina í ár. Hugmyndir hafa verið á lofti um að halda keppnina í borg óttans en ekki hér í bæ eins og tíðkast hefur á undanförnum árum.

Annað sætið hreppti Sigrún Helga Andrésdóttir í 4.F með laginu Hurt sem Christina Aguilera gerði frægt á sínum tíma. Hákon Guðni Hjartarson í 2.A hreppti þriðja sætið með laginu Cry me a River sem sló í gegn í flutningi Ellu Fitzgerald á miðri síðustu öld.

Vinsælasta lag kvöldsins að hálfu nemenda var Bítlalagið Let it be í flutningi Marínar Eiríksdóttur. Margir þóttst hafa séð anda John Lennon bregða fyrir í sviðsmistrinu án þess þó að það hafi fengist staðfest.

Hér fyrir neðan má sjá upptöku af flutningi sigurlagsins:

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.


Innskráning