14. nóvember 2009 kl. 18:00 | Sindri | Pistlar |

LARP MA-inga hræðir starfsfólk FSA

Nú fyrir helgi höfðu 31 manns staðfest mætingu í „Lystigarðs Larp“ á Facebook en Akureyri LARP comunity undir stjórn Ólafs Helga Thorarensen í 2.F, sem stóð fyrir viðburðinum.

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í Larpinu voru MA ingar en þessi skemmtun þeirra vakti meiri athygli en þeir höfðu búist við.

,,Lögreglunni á Akureyri barst rétt fyrir kl. 01:00 í nótt tilkynning frá Sjúkrahúsinu á Akureyri um mikinn hávaða sem bærist frá Lystigarðinum. Lögreglumenn fóru á staðinn og heyrðu þegar mikil öskur og angistarvein berast úr skóginum. Skömmu seinna sáu þeir bregða fyrir mannveru í tígrisdýrafeldi og síðan sást annar maður laumast um, ber að ofan, málaður í andlitinu og með sverð í hönd.

Á vef lögreglunnar kemur fram að fleiri skuggar sáust á ferli milli trjánna. „Lögreglumennirnir afréðu að nálgast þessar verur, enda jarðbundnir menn og vantrúaðir á að þarna færu fulltrúar af öðrum heimi. Tígri og málaði maðurinn reyndust enda hinir viðræðubestu og lögðu þegar niður plastvopnin sín þegar þeir urðu lögreglunnar varir,“ að því er segir á vef lögreglunnar.

Kom á daginn að þarna voru venjulegir framhaldsskólanemar af holdi og blóði. Félagar þeirra tóku nú að gefa sig fram hver af öðrum og voru í hinum ýmsu búningum og með vopn úr frauðplasti og fleiru. Alls voru þetta 10-15 verur sem gáfu þá skýringu að þeir væru að ,,larka“, þ.e. í hlutverkaleik.

Lögreglan hefði reyndar truflað lokaorrustuna. Þeir féllust á að geyma hana til betri tíma og viðurkenndu að uppátækið hefði getað komið grandalausum vegfarendum nokkuð í opna skjöldu.“

Sjá frétt á mbl.is

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • MySpace
  • StumbleUpon
  • email


UNAK

1 athugasemd

  1. Tinna Ingólfsdóttir Tinna Ingólfsdóttir segir:

    Mamma mín var á næturvakt á spítalanum sagða nótt og heyrði í þeim. Óskaplega þótti mér það fyndið.


Innskráning