Hér muna á miðnætti 25. apríl birtast upplýsingar um frambjóðendur skólaárið 2010-2011.
Embættin sem kosið verður í eru eftirfarandi:
Formaður Skólafélagsins:
Hrefna Rún Magnúsdóttir
Ég heiti Hrefna Rún Magnúsdóttir og er að bjóða mig fram í formann skólafélagsins Hugins. Ég trúi að ég mundi gera mitt allra besta til að veita nemendum eftirminnilegt næsta ár og muni hafi velferð og skemmtun þeirra að leiðarljósi mínu. Ég held að ég hafi töluverða reynslu á félagsmálasviðum og mun nýta mér hana til fulls og með því öðlast nýja og skemmtileg reynslu. ÞÚ munt ekki sjá eftir atkvæði þínu til mín :)
Óli Dagur Valtýsson
Ég tel mig vera frekar heiðarlegan og afslappaðan einstakling, og ég ætla að ganga svo langt að segja að ég sé skemmtilegur líka. Það tel ég vera góða uppskrift að góðum formanni.
Fyrir betri skóladag, kjósum Óla Dag….þarf að segja meira
Takk fyrir mig
Varaformaður:
Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir
Heiðdís heiti ég og býð mig fram í embætti varaformanns Hugins. Við, Ma-ingar, erum með sterkt skólafélag og öflugt félagslíf sem ég tel þó að hægt sé að bæta. Ég tel að hægt sé að virkja nemendur skólans til þátttöku í félagslífinu enn meir en hefur verið gert. Það þarf að auka þátttöku yngri nemenda á kvöldvökum og öðrum atburðum, með meiri þátttöku koma fleiri hugmyndir að góðum og fjölbreyttum atburðum. Eru ekki flestir orðnir þreyttir á sömu kvöldvökunum með sömu leikjunum og sama fólkinu? Stefnan er að auka gagnsæið og sýnileika stjórnarinnnar, nemendur þurfa að vera upplýstari um hvað sé í gangi og hafa meiri áhrif á hvað sé hægt að gera. Þeir þurfa að vita hvert á að snúa sér ef upp koma hugmyndir, athugasemdir eða spurningar.
Ég mun því leggja mig alla fram til að gera næstkomandi skólaár sem skemmtilegast og fjölbreyttast.
Jóhanna Stefánsdóttir
Ég heiti Jóhanna Stefánsdóttir, er í 3.I og gef kost á mér í stöðu varaformanns Hugins næsta skólaár.
Ég hef verið flækt í félagslífið síðan ég var lítill busi og þá sérstaklega snattast í kringum skólablaðið. Þar sem ég er glöð og jákvæð á ég auðvelt með að vinna með fólki sem gerir mig að tilvöldum varaformanni! Ég hef hingað til mætt á flesta atburði sem skólafélagið hefur boðið uppá og því gert mér grein fyrir því að kjarninn að þessu frábæra félagslífi sem einkennir MA er að nemendurnir hafa haldið vel í allar þessar frábæru MA-hefðir og á sama tíma komið með sínar eigin nýjungar. Frábært eða frábært?
Ef þið kjósið mig eruð þið að tryggja ykkur félagslíf með óteljandi áleggstegundum og ókeypis gosi með!
Jón Þór Kristjánsson
Ég heiti Jón þór og er í 3.G
ég hef gaman af íþróttum og góðu grilli í góðra vina hópi. Ég er að bjóða mig fram í varaformann vegna þess að ég tel nauðsyn fyrir skólafélagið að fá mann eins og mig í stjórn.
Gjaldkeri:
Jana Salóme Jósepsdóttir
Ég heiti Jana Salóme og er í 3.XY. Ég býð mig fram í gjaldkera skólafélagsins fyrir næsta skólaár. Ég er metnaðarfull, ákveðin og samvinnuþýð. Ég tel mig geta staðið undir þeirri ábyrgð sem starf gjaldkera felur í sér og mun gefa mig alla fram í það. Ég vil leggja mitt af mörkum við að hjálpa ykkur að gera næsta skólaár eftirminnilegt.
Kristján Eldjárn Sveinsson
Ég heiti Kristján Eldjárn Sveinsson ég er að bjóða mig fram sem gjaldkera í stjórn hugins. Ég er 19 ára er í 3.FH kem frá krossum í dalvíkubyggð en er að leiga í stafholti 14.
Þorsteinn Máni Óskarsson
Þorsteinn Máni Óskarsson heiti ég og hyggst bjóða mig fram í embætti gjaldkera. Ég er spakur en jafnframt litríkur karakter og hef einkar gaman af mannlegum samskiptum. Einhverjir hafa haft það á orði að ég sé þægilegur í umgengni, sveigjanlegur og jafnframt skemmtilegur. Þar verð ég að vera sammála þeim. Líklega er mikilvægast að vera ábyrgur þegar kemur að því að sinna embætti gjaldkera. Það tel ég mig tvímælalaust vera. Til marks um það hef ég aldrei fengið stöðumælasekt og allir mínir bankareikningar innihalda fjárhæðir upp á minnst 7 stafa tölur.
Kjósið metnað, kjósið heiðarleika, kjósið Þorstein í gjaldkerann.
Ritari:
Darri Rafn Hólmarsson
“Darra Rafni Hólmarssyni var þrýst í þennan heim á öðrum degi júlímánaðar árið 1991. Hann fæddist spengilegur með spekingssvip á Akureyri en var getinn í Bandaríkjunum og því með hálfan heiminn á bakvið sig. Hann á tvær systur og því reyndur í því að díla við erfitt kvenfólk. Darri Rafn hefur mikla reynslu af þjónustu og samskiptum við fólk enda almennt talinn vera vinsælasti kassastarfsmaður Hagkaupa frá upphafi. Darri á ekki í vandræðum með að koma fram fyrir framan aðra enda var hann á útopnu fyrir framan hálfa þjóðina, m.a. forsetann sjálfan. Darri skaraði fram úr á öllum ritunarprófum í grunnskóla og verður því ekki í neinum vandræðum með að rita vel valin orð fyrir félaga sína í stjórn Hugins. Samkvæmt lögum skólafélagsins situr ritari í vefnefnd Munins og er tengiliður skólafélagsins í henni. Þar ætti hann ekki að reynast illa enda hélt hann úti bloggsíðu þegar það var svalt að blogga með rúmar 300 þúsund heimsóknir og tilnefndi bloggdívan Katrin.is hana sem eina af sínum uppáhalds.
X við Darra í Rit-darra!”
Skemmtanastjóri:
Alexander Nökkvi Baldursson
Komiðið sæl og blessuð kæru samnemendur og aðrir lesendur. Alexander Nökkvi heiti ég og er Baldursson. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér sem skemmtana stjóra í stjórn Hugins skólaárið 2010-2011. Þar sem þetta er í annað skiptið sem ég skrifa þennan texta ætla ég mér ekki að gera hann nálægt því eins langn og hann var áður vegna þess að ég einfaldlega bara nenni því ekki og hef ekki beint tíma til þess þar sem ég sit í heimspekitima hjá Sigurði Ólafssyni akkúrat þessa stundina. En til að segja stuttlega frá mér og mér sjálfum, þá er ég nemandi á félagsfræðibraut og er í 3. bekk G. Ég ætla bara að hafa þetta stutt og laggott og biðja ykkur vinsamlegast um að kjósa mig þar sem ég get næstum því lofað ykkur því að þið munið ekki sjá eftir því. Ég mun þó halda áróðri og þessháttar í lægri kanntinum þar sem ég er fátækur námsmaður, en vonandi eigi þið eftir að taka eftir mér á einhvern hátt.
Lifið heil,
Alexander Nökkvi (vonandi skemmtanastjóri von bráðar)
Alexander Nökkvi (vonandi skemmtanastjóri von bráðar)
ps. ég er skemmtilegur.
ps2. ég elska Rappbarbarana.
Snorri Eldjárn Hauksson
Komið þið sæl og blessuð, Snorri heiti ég og er Eldjárn, Donk, Snooze eða hvað sem þér líkar best. Kem frá Dalvíkinni draumabláu og er í 3.XY. Ég bíð mig fram til skemmtanastjóra Huginns skólaárið 2010-2011 því ég tel að kraftar mínir á félagssviðinu gætu nýst best í því starfi. Þetta starf er lýsandi fyrir mig því mér finnst fátt mikilvægara í lífinu en að hafa gaman af og gleðja aðra.
Settu krossinn við Snorra, svona uppá fjörið og smælaðu framan í heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig…. Djémleee vúhh!!
Forseti Fjáröflunarnefndar:
Guðrún Halla Guðnadóttir
Hlín Blöndal
Hæ fallegu menntskælingar !
Ég heiti Hlín og er í 3.G. Ég er að bjóða mig framm í forseta fjáröflunarnefndar, af hverju? Mig langar að gera næsta vetur að trylltum vetri skólafélagsins með því að plotta pening út úr sem flestum fyrirtækjum, ég hlusta ekki á neitt krepputal. Ég fíla að skipuleggja eitthvað skemmtilegt og mig langar að koma með nýjar og ferskar hugmyndir fyrir næsta skólaár.
Endilega krotið X við nafnið mitt á miðvikudaginn.
Valtýr Aron Þorrason
Valtýr Aron Þorrason er nemandi í 3.XY og hefur gífurlegan áhuga á fjármálum, samningagerð og fjáröflun og hefur þónokkra reynslu af slíku.
Aron situr nú í fjáröflunarnefnd Hugins sem fulltrúi 3. bekkjar. Nefndin er sú fyrsta sem skipuð hefur verið og hefur samstarfið gengið vel og margar góðar hugmyndir komið upp sem hægt væri að hrinda í framkvæmd á næsta skólaári sem myndu gæða skólann miklu lífi og einnig skila góðum summum inn í kassa skólafélagsins.
Aron er formaður BarMA sem er félag iðkenda og áhugamanna um bardagalistir í MA. Félagið var alls með 5 námskeið á ratatoski á sínum snærum og hefur hjálpað mörgum MA-ingum að byrja að æfa bardagalistir.
Áhuginn, metnaðurinn og hæfileikinn til samningagerðar er tvímælalaust til staðar. Svo þið vitið hvert X-ið á að fara á miðvikudaginn kemur.
Meðstjórnandi:
Guðmundur Gíslason
Sem áhugamaður um pólitík hef ég haft áhuga á því að bjóða mig fram í stjórn Hugins frá inngöngu minnar í MA. Vegna lélegs framboðs þá hef ég ákveðið á því að skella mér í lista og bjóða mig fram sem meðstjórnanda. En ástæða þess að ég valdi meðstjórnanda er sú ég tel embættið vera frekar vanrækt og ekki tekið nægilega alvarlega, tek ég sem dæmi að fæstir vita hvað meðstjórnandi gerir. Ég er nemandi á málabraut og nýt ég mín þar í botn, enda eru tungumál mitt helsta áhugamál.
Inga Bryndís
Ég heiti Inga Bryndís og er í 3. FH. Ég er að bjóða mig fram í meðstjórnanda, afþví að ég veit að ég geti lagt mitt að mörkum til þess að gera félagslífið skemmtilegt og fjölbreytt í skólanum. Ég hef reynslu í að skipuleggja og hjálpa til við ýmsa atburði á vegum skólans, t.d árshátíðina, söngkeppnina og kvennakvöldið.
MORFÍS og Gettu Betur eru keppnir sem eru stórskemmtilegar og hafa sett stórann svip á Menntaskólann á undanförnum árum, það er því mikilvægt að keppnisliðin fái góðan stuðning. Ég tel mig fullfæra um að standa undir kröfum embættisins, en um leið gera það skemmtilegt.
Forseti Hagsmunaráðs:
Helga Sigfúsdóttir
Ég heiti Helga Sigfúsdóttir og býð mig fram í forseta hagsmunaráðs. Ég hef mikinn áhuga á hagsmunamálum ykkar nemenda í Menntaskólanum á Akureyri og ég veit að ég hef allt til að bera þetta embætti. Ég vil hagsmuni ykkar í fyrsta sæti.
Rakel Rós Snæbjörnsdóttir
Ég heiti Rakel Rós Snæbjörnsdóttir, er í 3.I og ég býð mig fram í embætti forseta hagsmunaráðs. Ég hef rosalegan áhuga á því að hafa meiri áhrif í skólalífinu og taka meiri þátt í því. Ég er skipulögð, dugleg og traustsins verðug og tel ég að það sé gott að búa yfir þessum eiginleikum í þessari stöðu. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að gæta hagsmuna nemenda og koma á framfæri öllum skoðunum og athugasemdum um það sem mætti bæta.
Ég lofa því að gera mitt allra besta.
x-Rakel Rós
—
Fulltrúar 2. 3. og 4. bekkjar í Hagsmunaráð (þ.e.a.s. núverandi 1. 2. og 3. bekkjar)
Sóley Úlfarsdóttir 1.b
Ég heiti Sóley og er að bjóða mig fram sem fulltrúa 2. bekkjar í hagsmunaráð. Ég er í 1.b og stefni á málabraut. Ég sit núna sem fulltrúi 1. bekkjar og langar að halda áfram í hagsmunaráði af því að mér fannst þetta skemmtilegt starf. Ég er uppalin á Akureyri og var í Brekkuskóla, þar sat ég í nemenda- og skólaráði. :)
Helga Þóra Helgadóttir
Ég heiti Helga Þóra Helgadóttir og er í 2.F, ég býð mig fram sem fulltrúa 3.bekkjar í Hagsmunaráð skólaárið 2010-2011.
Ég tel mig mjög aðgengilega manneskju fyrir nemendur til að tala við ef eitthvað kemur upp á sem varðar hagsmuni ykkar og ég vil geta hjálpað til og gert allt sem í mínu valdi stendur til að nemendur fái sínu fram.
Ég vil einnig ná góðum samningum um afslætti fyrir nemendur í búðum og fyrirtækjum og hafa þá sýnilega.
Ég mun gera mitt besta.
Sindri Már Hannesson
Ég heiti Sindri Már Hannesson og er í 2.T. Ég er að bjóða mig fram fyrir hönd verðandi 3. bekkjar í hagsmunaráð. Ég hef verið í Hagsmunaráði síðan í 1. bekk á seinni önn og vil endilega halda því áfram, þar sem ég tel það góðan undirbúning fyrir næsta ár. Ég tel að það þurfi að gera Hagsmunaráð sýnilegra fyrir nemendum svo þeir geti nýtt sér það sem ráðið hefur upp á að bjóða.
Fulltrúar 2. 3. og 4. bekkjar í skemmtinefnd (þ.e.a.s. núverandi 1. 2. og 3. bekkjar)
Kristján Sindri Gunnarsson 3.T
Ég er að bjóða mig fram sem Fulltrúa 4.bekkjar í skemmtananefnd útaf því að mig langar til að bæta skemmtanalífið í MA.
Katharina Lethaus 3A
Ég heiti Kati, er í 3.A og er að bjóða mig fram sem fulltrúa 4. bekkjar í skemmtinefnd! Mig langar að gera lífið í MA skemmtilegra og hef mikinn áhuga á að skipuleggja viðburði. Ég er tilbúin að leggja mig alla fram til þess að næstkomandi skólaár verði sem allra skemmtilegast ;)
Ritstjóri Munins:
Formaður Málfundafélagsins:
Formann Leikfélagsins:
Silja Björk Björnsdóttir
Ég heiti Silja Björk og ég er að bjóða mig fram í formann LMA skólaárið 2010-2011.
Ég hef verið að vasast í leiklist frá því ég man eftir mér, sífellt eitthvað að fikta með stuttmyndir og leikrit, setti upp ótal söngleiki heima í stofu á mínum yngri árum og fór á öll þau leiklistarnámskeið sem báðust, þar af tvö leiklistarnámskeið hjá leikstjóranum Garúnu.
Mér er margt til listanna lagt og ég trúi því að ég verði frábær formaður vegna þess að ég er skipulögð, vinn vel og hef billjón sinnum áður setið í allskonar nefndum og ráðum og listum. Ég hef til dæmis núna gengt starfi ritara hjá LMA-stjórninni, var í Kabarett í fyrra og tók þátt í uppsetningu Grænjaxla núna þetta árið. Í fyrrasumar vann ég í leikhópnum Sannleik og var framkvæmdarstjóri hópsins fyrir Akureyrarvöku gjörninginn okkar. Ég verð frábær formaður vegna þess að ég kem til með að hlusta á samnemendur mína, halda uppi þeim hefðum sem skapast hafa og halda uppi því fjöruga og líflega andrúmslofti sem hefur einkennt LMA undanfarin ár. Einnig mun ég vinna áfram í að koma LMA í gott framtíðarsamstarf við Leikfélag Akureyrar, halda uppi skemmtilegum námskeiðum, halda kvöldvökur, hafa frábært árshátíðaratriði og sýna kick-ass flotta sýningu með vorinu !
Ég lifi í listinni og ég vona að þú gerir það líka ! Kjóstu mig
Formaður Íþróttafélagsins:
Erlendur Helgi Jóhannesson
Ég er að bjóða mig fram í embætti formanns Íþróttafélags Hugins vegna þess að ég vil geta haft áhrif á íþróttalífið innan skólans til hins betra.
Erlendur H. 3. T
Formaður Tónlistarfélagsins,
Jón Már Ásbjörnsson
Jón Már heiti ég og býð mig fram í formannsembætti Tónlistarfélags MA. Fyrst það þarf að
telja upp ástæður fyrir framboði þá er ég að bjóða mig fram af því mig langar að reyna að
toppa núlíðandi skólaár, hvað TóMA varðar. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það verður
erfitt en mig langar þó að reyna þar sem að ég er nú þegar kominn með þó nokkuð margar hljómsveitir+
sem væru miklu meira en tilbúnar til að koma og spila í Menntaskólanum. Þarf þó ekki alltaf fræg
nöfn til þess að halda góða tónleika. Margar hljómsveitir eru í MA og það þarf að gera þær og
TóMA sýnilegri. Bæta má bókhald undirfélagsins en þá er ég að tala um skipulag fjármuna og ábyrgð
í eyðslu og tel ég mig vera meira en tilbúinn í það. Annars er aðalástæðan fyrir mínu framboði
sú að mig langar til að halda áfram og reyna að toppa það tónlistarlíf sem verið hefur í MA.
Ég þakka fyrir mig með von um góðar kosningar.
Jón Már Ásbjörnsson 2.G
Formðaur MyMA,
Tveir fulltrúar í skólaráð:
Hulda Hólmkelsdóttir
Bjarki Geir Benediktsson
Einn fulltrúi í skólanefnd:
Bryndís Rún Hafliðadóttir 1.D
Ég heiti Bryndís Rún og er í 1.D og ætla að fara á málabraut næsta haust. Já, ég er bara busi, en ég er líka hörkuduglegur busi. Ég er búin að vinna í Pennanum/Eymundsson frá því að ég var 12 ára en núna er ég ekki lengur að pakka inn jólagjöfunum ykkar heldur er ég að hjálpa ykkur að finna skólabækurnar. Ég var í 3 ár í nemendaráði í grunnskóla og er mjög ábyrg manneskja.
Fyrir ykkur sem hafa séð Grænjaxla, leikrit LMA, þá er ég þar á bakvið tjöldin að sjá um leikmyndina. Þar hef ég lagt mikið af mörkum og er sviðstjóri og má með sanni segja að leikmyndin myndi ekki snúast án mín. Ég er kát og hress stelpa og hef gaman af því að stússast, skipuleggja og sitja á fundum. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að skólinn verði sem bestur fyrir nemendurnar og nú með nýrri námskrá og tilraunakennslu vil ég passa að hagsmunir nemenda verða alltaf hafðir að leiðarljósi.
Almar Daði Kristjðansson 2.I
Ég heiti Almar Daði Kristjánsson og ég býð mig fram sem áheyrnarfulltrúa nemenda í skólanefnd. Ástæðan fyrir framboði mínu er sú að ég vil auka gegnsæið í skólanum. Sjálfur tók ég óformlega könnun og spurði um 20 manns hvort þeir vissu eitthvað um starfsemi skólanefndar. Allir sögðu nei nema einn, en það kom svo í ljós að hann hélt að skólanefnd væri eitthvað annað. Þessu vil ég breyta. Ég vil að nemendur séu meðvitaðir um tilvist og tilgang skólanefndar.



























