Undirfélögin eru grunnur félagslífsins í Menntaskólanum á Akureyri, þau eru límið sem heldur þessu öllu saman.
Undirfélög Hugins eru jafn mörg og þau eru fjölbreytileg, allir finna sér eitthvað við sitt hæfi. Myndbandafélagið, leiklistarfélagið, hljóð- og ljósafélagið og tölvufélagið eru einungis brota brot af flóru félaga í MA.
FálMA: Félag áhugaljósmyndara í MA. Að auka áhuga á ljósmyndun, auka þekkingu félaga á stillingum véla o.s.frv. Halda námskeið í ljósmyndun og forritum tengdum henni og halda ljósmyndasýningar í skólanum. Stendur einnig fyrir ljósmyndasamkeppnum á Facebook.
VíMA: Efla vinstrimennsku í MA, heimsyfirráð
BaMA/BandýMA: Áhugafólk um baný hittist og spili bandý.
HomMA: Að leggja grundvöll fyrir kynningu og iðkun á listum sem menntskælingar stunda en fá venjulega ekki að njóta sín. Auk þess að efla heimspekilega umræðu og reyna að fá heimspeking til að flytja ávarp.
MacMA: Tilgangurinn er að við erum að stofna félag. Gengur útá að við eigum öll Mactölvur. Hittumst og lönum í Mac.
KóMA: Hylla og njóta KÓKÓMJÓLK! Við komum með kókómjólk minnsta kosti 2 í viku.
SauMA: Söngur, tónlist og skemmtun.
TvíMA: Tvíburar í MA, inntökukilyrðin eru þau að vera tvíburi. Starfsemi félagsins er að hist er 1x í mánuði og gert e-ð skemmtilegt saman.
GrillMA: Að efla grillmenningu Menntskælinga og vera með almennt grill.
NuddMA: Hittingur þar sem að allir strákar mæta berir að ofan með Baby Johnson-oil og nudda stelpurnar. Og stelpurnar mæta „sætar“ og nudda strákana eðalnuddi. Stefnt verður að því að fá nuddkennara í sýniskennslu á einhverjum af fyrstu fundunum.
FILMA er tiltölulega nýtt félag. Markmið félagsins er að búa til margar en stuttar stuttmyndir sem geta mögulega verið svona í frímínútum, kvöldvökum en aðallega á veftv á netinu.-
BarMA: Bardagalistir í MA. Félagsskapur fyrir þá sem hafa æft, æfa eða vilja byrja að æfa bardagalistir. Tilgangur félagsins er að miklu leyti að kynna nemendur skólans sem vilja byrja að æfa fyrir því sem er í boði hér á Akureyri og hjálpa þeim með að koma sér af stað.
TölMA: Að halda svokölluð lön, þar sem fólk kemur saman, tengir saman tölvur sínar og spilar tölvuleiki saman.
SushiMA: Elda saman sushi.
LausMA: Að hafa gaman, hittast án maka, vera á lausu saman, slúðra, horfa á myndir, stelpast. Sem sagt, tilgangurinn er að stelpur sem eru á lausu skemmti sér saman og kynnist nýju fólki. Það verða blind-dates, fyrirlestrar og allt stelpulega dótið.
TekkMA: Spila saman Tekken!
StrumpmöffMA: Þetta er félag fyrir áhugamenn strumpa og möffins. Við höfum hugsað okkur að hittast með möffins jafnvel baka saman og horfa á strumpana.
80‘s MA: Hlusta á 80‘s og vera awesome. Vonandi verður haldin 80‘s kvöldvaka með sprelli.
KvikMA: Efla áhuga fólks á öðruvísi kvikmyndum, frumkvöðlum í kvikmyndagerð og boðskapnum á bakvið myndir. Sýning mánaðarlega til að byrja með allavega og stefnt að meiri virkni frá öðrum nemendum.
KarMA: Kapítalistar í MA. Þetta er lunch klúbbur sjálfstæðismanna, farið er að borða í hádegi nokkrum sinnum á önninni. Takmark er að hægri væða skólann og eggja vinstri menn! Við ælum að reyna að fá Davíð Oddsson til að mæta með okkur á Bautann og halda stutta ræðu.
MyMA: Upptaka á helstu viðburðum skólaársins, myndvinnsla, stuttmyndagerð, auk aðstoðar við ýmis tæknimál.
SkiMA: Skiptinemar í MA. Tilgangurinn með félaginu er að safna saman fyrrverandi , núverandi og framtíðar skiptinemum til að deil sögum og reynslu. Félagsmenn munu hittast á kaffihúsum eða heimahúsum.
HíMA: hægri menn í MA. Efla og bæta samskipti hægri manna í MA og vera með umræðu og samskipta grundvöllur fyrir þá. Einnig hjálpa hægri mönnum að setja sig í tengsl við skyld félög á eyjafjarðarsvæðinu.
GraMA: Grafík félag MA. Tilgangur felst í að auka áhuga fólks á grafíkvinnslu, svo sem vinnslu með photoshop illustrator og in design. Haldin verða námskeið í vetur þar sem hægt er að fá grunnþekkingu á forritinu hjálp með þau og annað slíkt.
RisMA: Fyrir alla þá sem eru hærri en 189 cm. Tilgangur félagsins er að gera lítið úr DvergMA.
DvergMA: að sýna framá að margur er knár þótt hann sé smár og rústa lúðunum í RisMA í einu og öllu. Verður að vera undir 173,5cm ef þú ert KK en undir 163,8 ef KVK
AmMA: Anime og mangafélag MA. Hafa gaman, horfa á Anime og lana manga á milli.
RauMA: Rauðhærðir í MA. Tilgnangur: heimsyfirráð. Stafsemi: ertu rauðhærðu? Nei, þá máttu ekki vita það.
TóMA: Tónlistarfélag MA. Skipuleggja Viðarstauk og Stiðarvauk, tónleika, tónlistaratriði í löngu og margt fleira tónlistartengt. Halda utan um tónlistarlífið í MA.
Málfundafélag MA: Að halda utan um þáttöku MA í morfís velja lið með opnum inntökuprófum, halda bekksagnakeppni og málfundi á milli ýissa skoðannatrúða innan skólans ef grundvöllur er fyrir.
VeggMA: Halda uppi viðburðarlest MA
SviMA: Sama og í fyrra: sketcha og video félag í MA.
HljóMA: Umsjón á hljóðkerfi og ljósum í kvos og öðrum stöðum á vegum skólafélags. Fullkomið stúdíó til afnota í skólanum fyrir hljóðvinnslu á lögum og fleira. Námskeið.
FríMA: iðka og styrkja áhuga á amerískum fótbolta í MA.
LMA: Leikfélag menntaskólans á Akureyri. Heldur utan um leiklistarstarf MA. Skapar vettvang fyrir hæfileikafólk á öllum sviðum leiklistar og leikhússtarfsemi. Miðar að því að efla áhuga MA-inga á leiklist með því að halda margskonar námskeið, fara á Leiktu betur og setja upp leiksýningu á vorönn.
HestMA: Hestaklúbbur MA, Hitta fólk sem hefur gaman af hestum. Fara í heimsóknir og fá meiri fræðslu um þá. Reyna kannski að hafa eitthvað námskeið. Reyna fara á framhaldsskólamótið í hestaíþróttum.
PriMA: Dansfélag í MA. Fyrir þá sem hafa gaman af að dansa. Stefnt á sýningar á kvöldvökum og árshátíð MA. Halda dansnámskeið yfir veturinn. PriMA-bikarinn. Freestyle danskeppni. Haldin á akureyri á vegum PriMA. Eina freestyle keppnin utan við höfuðborgarsvæðið.
HaMA(s): Vinir palestínu í MA. Óréttlæti og mannréttindabrot sem viðgangast í Palestínu verða kynnt fyrir nemendum. Saga Ísraels og Palestínu verður kynnt og fyrirlestrar haldnir.
FaðMA: Mætumst á göngum MA og föðmumst með bros á vör.
FilmMA: Að búa til stuttmyndir og jafnvel eitthvað lengra ef ég fæ mannskapin í það. Get sjálfur séð um myndavél, upptökur, klippingar og sound effects/tónlist.
LomMA: Lenin og Marxistar í MA. Að vekja athygli á ágæti Lenin- og Marxisma. Haldnir verða sellufundir sem og húslestrar á eftirfarandi bókum: Kommúnistaávarpið, Marxists on Maoists og haldnar verða umræður um Rauða kver Mao Tse-tung
FriendsMA: var stofnað núna haustið 2009. Okkur fannst bráðvanta félag þar sem forfallnir Friends fíklar gætu fundið stuðning og ákváðum við að gera eitthvað í því. Formenn eru Jenný Gunnarsdóttir, andlegur leiðtogi og Aðalbjörn Jóhannsson, Strategos Autokrates. Auk þeirra eru ýmsir undirmenn sem hjálpa til þegar á þarf að halda. Félagar hittast reglulega og horfa á Friends þætti saman, og hafa viðtökurnar verið góðar hingað til. Okkur langar líka að halda málfund um Ross og Rachel málið, hafa jólahitting og ýmislegt fleira.
PeppMA: Að sameina Dr. Pepper unnendur MA og stuðla að auknu framboði þess, þ.á.m. í sjoppu skólans.
KörfMA: Körfubolti í MA. Tilgangur er að efla og virkja körfuboltastarfsemi innan veggja skólans. Æfingar sirka tvisvar í viku í fjósinu. Skemmtilegt spil, ekkert þrekvirki.
StarMA: Star wars félag MA. Tilgangurinn er að fá star wars aðdáendur saman. Við munum hittast á tveggja vikna fresti og horfa á eina myund í hvert skipti. Svo þegar við erum búin með allar myndirnar höfum við star wars maraþon þar sem við horfum á allar myndirnar í einni dembu.
Muninn: Skólablaðið. Sér um heimasíðu okkar muninn.is og gefur út 1 blað fyrir hverja önn um félagslífið og allt sem þeim dettur í hug.
SíMA: Tilgangur: sameina alla þá sem að eru í Nova og hringja frítt í hvort annað.
FagMA: Félag allra gaura í MA.
emóMA: Sameinar brotnar sálir skólans. Tjáir tilfinningar sínar í ljóðum. emóMA heldur ljóðakeppni og mun stundum bjóða uppá svart naglalakk í löngu og emó tónlist.

