3. bekkjarráð

Hér munum við í þriðjabekkjarráði koma á framfæri upplýsingum varðandi fjáröflun og skipulagningu útskriftaferðarinnar, sumarið 2011.

Markmið

Meginmarkmið við úthlutun styrkja úr ferðasjóði þriðja bekkjar er að kostnaður vegna sérstaka styrkja, varasjóðs og kennara verði að mestu greiddur úr sameiginlegum sjóði sem safnað hefur verið í með sérstökum viðburðum en gengið verði sem minnst á einstaklingssöfnun nemenda.

Sérstakir styrkir
Sérstakir styrkir eru eftirfarandi:
Þriðjabekkjarráð tekur sér 100% styrk fyrir ferðinni, að undanskyldu fæði.
Gjaldkeri Sjoppuráðs hlýtur sama styrk og Þriðjabekkjarráð.
Meðlimir Sjoppuráðs hljóta helmings styrk á við Þriðjabekkjarráð.

Aðrir kostnaðarliðir

Aðrir kostnaðaliðir við ferðina eru eftirfarandi:
Ferðakostnaður og dagpeningar kennara. Ferðin er að fullu greidd fyrir kennara auk dagpenings sem nemur 2/3 að fæðispeningum ríkisstarfsmanna sbr. launatöflu ríkisstarfsmanna.
5% höfuðstóls skulu renna í varasjóð.

Skipting fjáröflunarliða

• Sameiginleg söfnun
o Sjoppa o.fl.
• Einstaklingssöfnun
o Klósettrúllur
o Lakkrís
o Mackintosh
o O.s.frv.
• Viðburðir
o Busaball
o Bingó
o O.s.frv.

Almennir styrkir nemenda

Punktahugtakið verður lagt niður og styrkir nemenda í stað þess reiknaðir út í krónum. Haldið er utan um einstaklingsframtak við söfnun og sölutölur hvers nemenda skráðar niður. Þáttaka nemenda í viðburðum, s.s. bingó, skráist sem ákveðinn fjöldi sjoppuvakta eftir því hversu tímafrekt starfið er.
Fyrst er kostnaður vegna sérstakra styrkja og annarra kostnaðarliða dreginn frá höfuðstólnum. Sá kostnaður skal fyrst tæma algjörlega viðburðasjóðinn og síðan ganga hlutfallslega á einstaklingssöfnun og sameiginlega sjóðinn. Leitast skal við að hámarka styrki nemenda fyrir einstaklingssöfnun en þó ekki svo mikið að sjoppuvaktir verði verðlausar. Nákvæm hlutföll er ekki hægt að reikna út fyrr en lokatölur liggja fyrir. Styrkur hvers og eins nemanda reiknast síðan út frá fjölda sjoppuvakta hvers nemanda og sölutalna einstaklingssöfnunar.

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi upplýsingar þær er birtar eru hér, skuluð þið endilega senda tölvupóst á 3rad@ma.is .

Innskráning