Lög skólafélagins

I. Nafn og tilgangur

1. Skólafélag Menntaskólans á Akureyri heitir Huginn.

2. Skólafélagið Huginn er nemendafélag Menntaskólans á Akureyri, sbr.grein laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla.

3. Félagar eru nemendur í dagskóla og greiða félagsgjöld sem ákveðin eru ár hvert að loknum umræðum á fjárlagafundi.

4. Tilgangur félagsins er að:

1. starfrækja Hagsmunaráð sem hefur það verkefni fyrir höndum að gæta hagsmuna nemenda gagnvart skólayfirvöldum og ráðuneyti og virkja nemendur til baráttu fyrir hagsmunum sínum.

2. skipuleggja félagsstarfsemi undir merkjum skólans og styðja við bakið á annarri félagsstarfsemi eftir föngum.

II. Stjórn félagsins

1. Stjórn Hugins skal skipuð átta mönnum: Inspector Scholae sem er formaður, varaformanni, ritara, gjaldkera, skemmtanastjóra, forseta Fjáröflunarnefndar, meðstjórnanda og forseta Hagsmunaráðs. Allir þeir sem skipa stjórnina hafa jafnan atkvæðisrétt á stjórnarfundum. Ef upp kemur sú staða að atkvæði skiptast jafnt, skal kosið aftur. Ef sama niðurstaða fæst hefur formaður skólafélagsins úrslitavald.

2. Hlutverk embættismanna í stjórn Hugins:

1. Inspector Scholae skipuleggur og stjórnar fundum stjórnar Hugins. Hann ber ábyrgð á öllu sem Skólafélagið Huginn framkvæmir. Formaður er helsti tengiliður stjórnar Hugins við skólayfirvöld. Formaður er tengiliður stjórnar Hugins við Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema ásamt forseta Hagsmunaráðs. Formaður skal leitast við að hafa góða yfirsýn yfir það sem er að gerast í skólalífinu hverju sinni.

2. Varaformaður er staðgengill formanns. Varaformaður skal vera tengiliður stjórnar Hugins við stjórnir nemendafélaga VMA og HA sem og við menningar- og upplýsingamiðstöðina Húsið.

3. Gjaldkeri sér um fjárreiður félagsins og að færa yfir þær nákvæmt bókhald. Gjaldkeri Skólafélagsins hefur heimild til að selja færslu bókhalds félagsins í hendur rekstrarstjóra skólans. Gjaldkeri býr til fjárhagsáætlanir og er skylt að vera ætíð vel meðvitaður um stöðu fjármála Skólafélagsins Hugins sem og annarra félaga. Honum er skylt að fara yfir fjárhagsáætlanir og skýrslur félaga (sérstaklega ef félög ætla að sækja um einingar fyrir vel unnin störf). Gjaldkera er skylt að starfa náið með forseta fjáröflunarnefndar og fjármálastjóra MA.
Gjaldkera ber að halda utan um eignir skólafélagsins og sjá um merkingar eigna og tryggingar þeirra sem og útlán eigna til nemanda eða undirfélaga. Gjaldkeri þarf að hafa náð 18 ára aldri.

4. Ritari skal halda fundargerðarbók og sjá um tengsl við vefsíðustjóra heimasíðu skólafélagsins Hugins og annast auglýsingar fyrir skólafélagið á muninn.is. Ritari situr jafnframt í vefnefnd Munins, og er tengiliður Skólafélagsins í henni.

5. Skemmtana stjóri skal sjá um skipulagningu á tímatöflu á Hólum og hengja upp eða hafa á netinu viðburðartöflu. Skemmtanastjóri er helsti tengiliður stjórnar Hugins við tæknimenn og húsverði. Skemmtanastjóri skal boða til, skipuleggja og stjórna fundum skemmtinefndar. Skemmtinefnd skal skipuleggja kvöldvökur og aðra atburði af þeim toga að minnsta kosti einn á önn. Skemmtinefnd skal funda eftir þörfum. Skemmtinefnd skal aðstoða við skipulagningu kvöldvaka óski skemmtanastjóri eftir því. Í skemmtinefnd skal eiga sæti einn fulltrúi úr hverjum bekk auk skemmtanastjóra.

6. Meðstjórnandi er tengiliður við Málfundafélagið og Gettu-Betur ráð. Hann aðstoðar einnig við ýmis tilfallandi verkefni sem berast skólafélaginu. Meðstjórnandi er aðaltengiliður stjórnar skólafélagsins við undirfélög.

7. Forseti Fjáröflunarnefndar sér um skipulagningu og framkvæmd fjáröflunar á vegum skólafélagsins. Einnig er forseta Fjáröflunarnefndar skylt að sjá um samningagerð fyrir hönd Hugins. Forseti Fjáröflunarnefndar skal sjá til þess að Fjáröflunarnefnd komi saman og skipuleggi í sameiningu fjáraflanir vetrarins. Forseta Fjáröflunarnefndar er skylt að starfa náið með gjaldkera. Forseti Fjáröflunarnefndar er einnig tengiliður Hugins við 3ja bekkjarráð

8. Forseti Hagsmunaráðs skal sinna sínum störfum eins og getið er í grein IV um Hagsmunaráð.

3. Að öðru leyti skiptir stjórn Hugins með sér verkum.

4. Í verkahring stjórnar Hugins er að:

1. semja fjárhagsáætlun fyrir starfsárið, áætla félagsgjöld í samræmi við hana.

2. boða til skólafunda.

3. boða til fundar með fyrsta bekk í byrjun hvers skólaárs. Æskilegt er að það gerist innan tveggja vikna frá skólasetningu. Á þessum fundi skal kjósa fulltrúa fyrsta bekkjar í Hagsmunaráð, skemmtinefnd og Íþróttafélagið. Þegar fulltrúarnir eru kosnir verður stjórn Hugins að biðja þá einstaklinga sem ekki eru í Skólafélaginu að greiða ekki atkvæði, en eingöngu þeir sem eru í Skólafélaginu eru kjörgengir.

5. Stjórn Hugins skal í byrjun skólaárs sjá um að kynna fyrir nemendum félagsstarfsemi þá sem fram fer innan skólans.

6. Stjórn Hugins skal a.m.k. einu sinni á önn halda fund með formönnum félaga og öðrum framámönnum í félagslífi skólans til samræmingar á félagsstarfi annarinnar.

III. Fjármál

1. Félagsgjöld skólafélagsins skulu innheimt á sama hátt og önnur skólagjöld. Öllum nemendum skólans er skylt að greiða félagsgjöldin og skal eindagi þeirra vera 25. ágúst. Þeir nemendur sem kjósa að vera ekki í skólafélaginu gefst kostur á að fá félagsgjöldin endurgreidd frá og með 14 dögum eftir fyrsta kennsludag.

2. Félagsgjöldum Hugins skal eingöngu varið til félagsstarfsemi undir merkjum skólans.

3. Til staðfestingar þess að félagsgjaldið hafi verið greitt skal afhent sérstakt skóla- og félagsskírteini með fullu nafni, lögheimili, kennitölu, fæðingardegi og ári, stimplaðri mynd af viðkomandi aðila og öðrum þeim upplýsingum sem nauðsynlegar kunna að þykja. Þetta skírteini gefa út í sameiningu skólaráð og stjórn Hugins.

4. Styrkir:

1. Styrki skal aðeins veita til að standa straum af kostnaði við starfsemi félaga í skólanum samkvæmt skriflegri umsókn og greinargerð um það hvernig fénu skuli varið. Verði þær breytingar á starfseminni að fénu verði ekki varið samkvæmt umsókn, getur stjórn Hugins krafist að styrknum verði skilað.

2. Stjórn Hugins skal ekki veita styrki til einstakra félaga nema þau hafi skilað endurskoðuðu bókhaldi fyrir síðasta starfsár. Nýstofnuð félög geta sótt um styrk.

3. Stjórn Hugins getur krafið félög innan Skólafélagsins um bókhald þeirra hvenær sem er, hvort sem þau njóta styrkja eður ei.

4. Stjórn Hugins skal birta reikninga endurskoðaða af löggiltum endurskoðendum eigi síðar en þremur vikum eftir að kjörtímabili hennar lýkur.

5. Stjórn Hugins skal sjá um að í lok hvers skólaárs verði birtir endurskoðaðir reikningar þeirra félaga sem stjórn Hugins styður fjárhagslega.

6. Allt það fé sem ætlað er til félagsstarfs í skólanum, s.s. styrkir, auglýsingatekjur o.s.frv. skal renna beint til félagsstarfsins. Óheimilt er að rekstrarfé sé varið til einkaþarfa.

7. Stjórn Hugins skal ekki veita fjáröflun 3ja bekkjar fjárstyrk vegna útskriftarferðar.

8. Stjórn Hugins skal ekki veita vettvangsferðum, eða öðrum námstengdum ferðum sem skólinn skipuleggur, fjárstyrk.

IV. Hagsmunaráð

1. Ráðið heitir Hagsmunaráð Hugins.

2. Hagsmunaráð Hugins er nemendaráð Menntaskólans á Akureyri, sbr. 10du grein í lögum nr.80/1996 um framhaldsskóla.

3. Hagsmunaráð fjallar um og gætir (sameiginlegra) hagsmuna nemenda, gagnvart þeim sem standa að og sjá um skólann og skólastarfsemi, í umboði stjórnar Hugins.

4. Hagsmunaráð fjallar um:

1. breytingar á kennsluháttum og öðrum starfsháttum skólans í samráði við skólastjórn.

2. vandamál sem upp kunna að koma upp í sambandi við almenn skólastörf.

3. önnur mál sem einstakir nemendur eða skólastjórn æskja að Hagsmunaráð taki afstöðu til.

5. Hagsmunaráð er skipað fimm mönnum, forseta og einum manni úr hverjum bekk. Einn þessara fulltrúa skal vera ritari ráðsins. Þeir skulu kosnir á aðalfundi II, nema fulltrúi 1sta bekkjar.

6. Hagsmunaráð leitast við að útvega afslátt í verzlunum bæjarins, félagsmönnum til handa, og birtir upplýsingar þar um til nemenda.

7. Hagsmunaráð hefur rétt til að skipa nefndir eða einstaklinga (með þeirra samþykki) til starfa við hagsmunamál.

8. Hagsmunaráð felur forseta sínum að krefjast skólafundar, ef það vill fá álit nemenda á einstökum málum, sem skólastjórn hefur til meðferðar.

9. Hagsmunaráð skal afla upplýsinga og gagna eftir föngum um þau mál sem liggja fyrir á skólafundum. Slík gögn skulu liggja fyrir á fundunum.

10. Hagsmunaráð skal taka afstöðu til viðbragða skólastjórnar (eða viðkomandi aðila) við ályktun skólafundar og taka ákvarðanir ásamt stjórn Hugins um hugsanlegar aðgerðir, málinu til áréttingar.

11. Hagsmunaráð skal í samráði við stjórn Hugins fylgjast með starfsemi og fjárhagi félaga skólans. Ef starfsemin er ekki í samræmi við starfsáætlanir og umsóknir um fjárveitingar frá Skólafélaginu, skal Hagsmunaráð koma athugasemdum um það til stjórnar Hugins.

12. Forseti Hagsmunaráðs skal í upphafi stjórnartíðar kynna sér lög Skólafélagsins og sjá um að þeim sé framfylgt innan stjórnar Skólafélagsins. Einnig skal forseti Hagsmunaráðs starfa tímabundið með Fastanefnd og vera henni innan handar við endurskoðun laga ár hvert.

V. Fulltrúar nemenda í skólanefnd og skólaráði

1. Fulltrúar nemenda í skólanefnd og skólaráði skulu sjálfir skipa varamenn sína þegar þeir hafa tekið við embætti. Sjái fulltrúi sér ekki fært að sækja boðaðan fund í skólanefnd eða skólaráði skal hann kalla til varamann sinn og setja hann inn í þau mál er til umræðu eru.

2. Í embætti sínu skulu fulltrúar tala í nafni nemenda og eru þeir ekki bundnir skoðunum stjórnar Hugins, Hagsmunaráðs, Bekkjarráðs eða annarra heldur því sem þeir telja réttast hagsmunum nemenda til heilla, álykti skólafundur ekki um annað.

VI. Fjáröflunarnefnd Hugins

1. Nafn nefndarinnar er Fjáröflunarnefnd Hugins.

2. Nefndina sitja fulltrúar allra hópa sem standa að fjáröflun.

3. Tilgangur nefndarinnar er að hafa umsjón með og skipuleggja fjáröflun vetrarins.

4. Ekki er leyfilegt að standa að fjáröflun án vitundar og samráðs forseta Fjáröflunarnefndar.

5. Fyrsti fundur skal haldinn innan þriggja vikna frá upphafi hvers skólaárs.

6. Fjáröflunarnefnd hefur ekki atkvæðisrétt í samningagerð Hugins

VII. Skólablaðið Muninn

1. Blað Skólafélagsins Hugins heitir Muninn.

2. Efni blaðsins skal ávallt leitast við að hafa sem fjölbreyttast.

3. Ritstjórn er ábyrg fyrir starfsemi Munins, en ritstjóri er ábyrgðarmaður blaðsins.

4. Öllu efni til blaðsins skal skilað undir fullu nafni, en heimilt er að birta það undir dulnefni sé þess óskað.

5. Ritstjóri skal kjörinn í almennri kosningu á aðalfundi II (kjörfundi).

6. Ritstjóri skal boða til aðalfundar Munins þar sem kosnir eru 8 fulltrúar í ritstjórn.

7. Ritstjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi. Embætti skulu vera: Aðstoðarritstjóri, gjaldkeri, auglýsingastjóri og meðstjórnendur.

8. Gjaldkeri Munins skal hafa samráð við rekstrarstjóra skólans um fjárreiður Munins. Gjaldkera Munins er skylt að vera ætíð vel meðvitaður um fjármál Munins.

9. Vefstjóri hefur yfirumsjón með vef Munins sem er jafnframt málgagn Skólafélagsins á veraldarvefnum.

10. Ritstjórn er heimilt að skipa félagsmenn Hugins (með þeirra samþykki) til starfa við Munin.

11. Vefnefnd

1. Vefstjóri Munins skal vera skipaður sameiginlega af ritstjóra Munins og fráfarandi vefstjóra.

2. Vefnefnd skólablaðsins Munins skipa ritstjóri Munins sem er einnig ábyrgðarmaður vefsvæðisins, vefstjóri sem hefur yfirumsjón með vefnum, ritari Hugins sem er tengiliður við Skólafélagið, auk fréttaritara eftir hentugleika.

3. Vefnefnd Munins hefur umsjón með vefsvæðinu Muninn.is, sem er vefur skólablaðsins.

VIII. Fastanefnd

1. Fastanefnd skal tilnefnd af stjórn Hugins í byrjun skólaárs. Í henni skulu eiga sæti formaður og tveir meðstjórnendur.

2. Fastanefnd skal sjá um allar kosningar innan Skólafélagsins, bæði á reglulegum kjörfundi, þ.e.a.s. aðalfundi II og einnig ef embættismaður segir af sér eða hverfur úr embætti af öðrum orsökum.

3. Nefndin endurskoðar lög félagsins og gerir tillögur til lagabreytinga eftir því sem hún sér ástæðu til. Þetta hindrar þó ekki að einstakir félagar geti borið fram tillögur til lagabreytinga.

4. Lögin skal birta í síðasta lagi 10 dögum fyrir kosningar.

5. Lagabreytingatillögum skal skilað fullunnum eigi síðar en þremur dögum fyrir lagabreytingafund til Fastanefndar og skulu þær tillögur hanga uppi a.m.k. í tvo daga fyrir lagabreytingafund.

6. Fastanefnd hefur heimild til þess að breyta stafsetningar- og málfarsvillum, án þess að samþykkja þurfi þær á lagabreytingarfundi. Fastanefnd er þó skylt að tilkynna um slíkar breytingar. Merking laganna má ekki breytast.

IX. Kosningaréttur

1. Kosningarrétt hafa þeir nemendur sem greitt hafa félagsgjöld til Skólafélagsins Hugins.

2. Við kosningu formanns, varaformanns, gjaldkera, forseta fjáröflunarnefndar, ritara, skemmtanastjóra, meðstjórnanda, forseta Hagsmunaráðs, ritstjóra Munins, formanns Íþróttafélagsins, formanns Málfundafélagsins, formanns Leikfélagsins, formanns Tónlistarfélagsins, skólanefndar- og skólaráðsfulltrúa hafa þeir nemendur sem ekki hafa greitt félagsgjöld í Hugin ekki kjörgengi, og ekki heldur í önnur embætti sem kosið er í.

3. Við kosningu fulltrúa í Hagsmunaráð og skemmtinefnd hafa þeir einir kosningarétt sem eru í sama bekk og kjósa á fulltrúa fyrir og greitt hafa félagsgjöld til Hugins.

4. Við kosningu umsjónarmanna bekksagnanna hafa einungis þeir kosningarétt sem eru í sögninni sem kjósa á fulltrúa fyrir. Við kosningu formanna bekkjarráðanna hafa umsjónarmenn bekksagnanna einir kosningarétt.

5. Ekki seinna en viku eftir að formenn málfundafélagsins, leikfélagsins og tónlistafélagins eru kosnir skulu þessi félög öll halda aðalfund. Þar skal kosið í stjórn félaganna til næsta árs.

X. Skólafundir

1. Skólafundir fjalla um hagsmunamál nemenda, embættisglöp, svo og ýmis önnur mikilsverð mál, sem upp kunna að koma. Skólafundir eru æðsta vald nemenda í öllum málum nema þeim sem varða lagabreytingar.

2. Formaður Skólafélagsins og stjórn Hugins hafa rétt til að boða til skólafunda. Auk þess á forseti Hagsmunaráðs kröfu á að boðað verði til skólafunda. Skal hann sjá um val á frummælenda á slíkum fundum. Einnig er skylt að boða til skólafundar ef 10% nemenda fara fram á það.

3. Skólafundir skulu boðaðir með minnst tveggja kennsludaga fyrirvara. Þeir skulu boðaðir með ítarlegri dagskrá.

4. Formaður Hugins setur skólafundi og skipar fundarstjóra. Kennarar hafa málfrelsi á skólafundum en ekki atkvæðisrétt. Að öðru leyti gilda almenn fundarsköp á skólafundum. Einfaldur meirihluti atkvæða nægir til að samþykkja ályktanir skólafundar.

5. Fulltrúar nemenda í skólastjórn túlka svo niðurstöður skólafundar á fundi skólaráðs.

XI. Aðalfundir og embættismannaskipti

1. Aðalfund skal halda í tvennu lagi: aðalfund I og II. Á aðalfundi I skal fjallað um lagabreytingar en á aðalfundi II skal kosið í öll embætti Skólafélagsins. Hvorn fund skal boða með minnst viku fyrirvara.

2. Aðalfund I skal eigi halda síðar en tveimur vikum fyrir kosningar ár hvert. Skal þar fjalla um lagabreytingar.

3. Um aðalfund I gilda eftirfarandi ákvæði:

1. Formaður félagsins setur fundinn og stingur upp á fundarstjóra.

2. Einfaldur meirihluti nægir til að samþykkja lagabreytingar.

3. Heimilt er á aðalfundi að bera upp breytingatillögur við tillögur til lagabreytinga og viðaukatillögur við þær tillögur.

4. Að öðru leyti gilda almenn fundarsköp á aðalfundi I.

5. Um aðalfund II (kjörfund): aðalfundur II skal haldinn í síðasta lagi fjórum vikum fyrir síðasta kennsludag og skal þá kosinn formaður Skólafélagsins, varaformaður, gjaldkeri, ritari, skemmtanastjóri, forseti fjáröflunarnefndar, meðstjórnandi, forseti Hagsmunaráðs ásamt Hagsmunaráði (nema fulltrúi 1sta bekkjar), ritstjóri Munins, vefstjóra Munins, skemmtinefnd (nema fulltrúi 1sta bekkjar), formaður Málfundafélagsins, formann Leikfélagsins, formaður Íþróttafélagsins, formaður Tónlistarfélagsins, formaður Myndbandafélagsins, tveir fulltrúar í skólaráð og einn fulltrúi í skólanefnd.

4. Um kosningar skulu gilda eftirtalin ákvæði:

1. Fastanefnd byrjar að taka við framboðum minnst hálfum mánuði fyrir framboðsfund og hættir að taka við þeim þremur dögum fyrir framboðsfund. Framboð sem berast seinna teljast ógild.

2. Hverju framboði skal fylgja listi með minnst 10 og mest 25 meðmælendum. Framboði er skilað með kynningartexta um frambjóðanda og mynd fyrir vinnslu kosningavefs sem haldið er úti á vefsetri munins.is

3. Framboðsfundur er haldinn einum til tveimur dögum fyrir aðalfund II

4. Fastanefnd skal birta opinberlega öll lögleg framboð, undir sínu nafni, innan sólarhrings frá því framboðsfrestur rennur út.

5. Fastanefnd sjái um undirbúning kosninganna, framkvæmd þeirra og talningu atkvæða

6. Fastanefnd skal gæta þess vandlega að kosning fari fram samkvæmt fundarsköpum að öðru leyti en hér greinir.

7. Þegar fleiri en einn eru í framboði til einhvers embættis, skal Fastanefnd sjá um að gera kjörseðla með áletruðum nöfnum þeirra, sem í framboði eru, í dreginni röð.

8. Kosið skal í öll embætti með því að setja X fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem kjósandi kýs.

9. Aðeins má kjósa einn fulltrúa í hvert embætti.

10. Í kosningum á aðalfundi II þarf minnst 50% kjörsókn til þess að þær séu gildar. Náist ekki 50% kjörsókn skal kosið á ný.

11. Fráfarandi meðlimir í stjórn Hugins skulu ekki lýsa opinberlega yfir stuðningi við einstök framboð eða frambjóðendur til stjórnar Hugins.

5. Embættismannaskipti skulu fara fram þremur vikum fyrir síðasta kennsludag vetrarins. Þó skulu Hagsmunaráð, ritstjórn, fulltrúar nemenda í skólanefnd og skólaráði auk formanna Málfundafélagsins, Íþróttafélagsins, Leikfélagsins og Tónlistarfélagsins sitja til vors.

6. Eldri stjórn Hugins er skylt að starfa tímabundið með þeirri nýju, henni til leiðbeiningar, eftir að hún hefur tekið við, óski hún þess.

XII. Bekkjarráð

1. Kosinn skal umsjónarmaður innan hverrar bekksagnar eigi síðar en tíu dögum frá skólasetningu og skal hann eiga sæti innan bekkjarráðs síns bekkjar.

2. Í bekkjarráði skal hver bekksögn eiga einn fulltrúa og æskilegt er að ráðin kjósi sér formann innan tveggja vikna frá skólasetningu. Ef fjöldi bekksagna er jöfn tala skal kjósa einn viðbótarfulltrúa úr sömu bekksögn og formaður ráðsins.

XIII. Gettu betur ráð

1. Ráðið skal heita Gettu betur ráð.

2. Ráðið sér um skipulag í kringum keppnina, hjálpar þjálfara við æfingar og sér um samskipti við aðra skóla, t.d. vegna æfingakeppna.

3. Meðstjórnandi Hugins er forseti Gettu betur ráðs.

4. Forseti Gettu betur ráðs sér um að fá fólk til liðs við sig. Æskilegt er að í ráðinu sitji 3-5 meðlimir auk forseta. Meðlimirnir mega vera úr hvaða bekkjum sem er og æskilegt er að þeir hafi áhuga á keppninni og skipulagi hennar.

XIV. Málfundarfélag Hugins

1. Formaður Málfundafélagsins og stjórn Hugins skipa í sameiningu tvo fulltrúa í stjórn Málfundafélagsins. Skal það gert eigi síðar en þremur vikum eftir stjórnarskipti.

2. Hlutverk Málfundafélagsins er að:

1. Sjá um ytra skipulag Morfís keppninnar; velja lið skólans, ráða þjálfara að hausti í samráði við skólameistara/skólaráð/stjórn Hugins, skrá liðið til keppni og sinna öðru því sem tengist keppninni.

2. Standa fyrir bekksagnakeppni í ræðumennsku þegar tími gefst til.

3. Skipuleggja og standa fyrir fyrirlestrum í samráði við stjórn Hugins þegar tími gefst til.

XV. Almenn lagaákvæði

1. Allir nemendur skólans skulu klæða sig siðsamlega til þess að særa ekki blygðunarkennd annarra nemenda.

2. Leyfi þarf að fá hjá ritara stjórnar Hugins áður en hengt er auglýsingu eða annað efni á töflur Hugins. Misbjóði nemendum auglýsingar eða annað efni sem hengt er á töflurnar skulu þeir koma skriflegri kvörtun til ritara Hugins sem svo kemur henni áfram til Fastanefndar sem sker úr um vafamál

XVI. Refsiákvæði

1. Embættisglöp teljast:

1. Brot á lögum Skólafélagsins.

2. Að ákvæðum laganna sé ekki fullnægt.

3. Alvarlegar skyssur í starfi.

4. Sóun á fjármunum.

5. Framtaksleysi í starfi.

6. Óviðunandi skipulag.

2. Tíu af hverjum hundrað félögum geta borið fram skriflega vantraustsyfirlýsingu á sérhvern í stjórn Hugins eða hana sem heild. Sama gildir um ritstjóra Munins, formann Málfundafélagsins, formann Íþróttafélagsins, formann Tónlistarfélagsins, formann Leikfélagsins, formann Myndbandafélagsins og fulltrúa nemenda í skólanefnd og skólaráði. Til að lýsa yfir vantrausti á fulltrúa bekkja í Hagsmunaráði og skemmtinefnd þarf tíu af hundraði viðkomandi bekkja. Yfirlýsingu þessari skal komið til formanns Fastanefndar. Skal hann þá boða til skólafundar um málið. Um slíka fundi gilda eftirfarandi ákvæði:

1. Formaður fastanefndar setur þá fundi og stýrir þeim.

2. Forsvarsmenn vantrauststillögunnar skulu gera ítarlega grein fyrir henni.

3. Embættismaður/-menn sem á/eiga hlut að máli, hefur/hafa rétt til að verja mál sitt þar, svo að allar hliðar málsins komi í ljós.

3. Stjórn Hugins er heimilt að leysa formenn frá störfum, ef hann óskar eftir því eða ef stjórn Hugins getur sýnt fram á m.a. með undirskriftum ( sjá XVI grein liður 2) að formaðurinn sé ekki hæfur í starfið. Þá skal starfinu auglýst lausu og gilda þá sömu reglur og ef um vantraustyfirlýsingu er að ræða (sjá XVI grein lið 2 og lið 4)

4. Ef vantrauststillaga hlýtur meirihluta greiddra atkvæða, skal Fastanefnd sjá um kosningar nýs embættismanns. Sú kosning fari fram eigi síðar en tveimur vikum frá atkvæðagreiðslunni um vantraustið.

XVII. Gildistaka og vafaatriði

1. Komi upp ágreiningur um túlkun laganna, skal Fastanefnd skera úr um hann.

2. Fastsettar dagsetningar geta færst til verði röskun á starfi skólans og skal Fastanefnd þá skera úr um það.

3. Lög þessi öðlast þegar gildi.

Innskráning