Huginn

Huginn, skólafélag Menntaskólans á Akureyri er nemendafélagið, kjölfestan í skólalífinu. Á vegum þess starfa fjölmörg félög og klúbbar, blandaður kór, íþróttafélag, leikfélag, tónlistarfélag, málfundafélag, félög áhugaljósmyndara og myndbandamanna og þannig mætti lengi telja. Skipulag félagsstarfsins er í höndum stjórnar HUGINS og önnur félög eru í nánum tengslum við HUGIN.

Helstu hátíðir sem skólafeálgið stendur fyrir eru Busaballið, vímulaus skemmtun í skólanum í upphafi skólaárs, Árshátíð MA, fjölmennasta vímulaus unglingahátið á Íslandi, haldin sem næst 1. desember, og Söngkeppni MA, sem er forkeppni fyrir Söngkeppni framhalds-skólanna. Einnig stendur skólafélagið fyrir stuðningi fið keppnislið í MORFÍS og Gettu betur.

Muninn

Skólablað nemenda Menntaskólans á Akureyri. Muninn kemur út a.m.k. tvisvar á ári, með greinum, myndum og margvíslegu efni sem nemendur semja og hanna að öllu leyti sjálfir. Vefur nemenda er www.muninn.is

Hagsmunaráð
vinnur, eins og nafnið bendir til, að hagsmunamálum nemenda, jafnt réttindamálum þeirra gagnvart skólanum og fyrirgreiðslu út á við. Í hagsmunaráði er einn fulltrúi af hverju námsári auk forseta, sem jafnframt á sæti í stjórn Hugins.

Ratatoskur
Ratatoskur er nafn á opnum dögum á vörönn, þegar regluleg stundaskrá er brotin upp en nemendum býðst að taka þátt í alls kyns námskeiðum og fyrirlestrum sem ekki heyra til daglegu starfi í skólanum. Nemendur bjóða upp á fræðslu um sérsvið sín og áhugamál, kennarar kenna og kynna eitt og annað óvenjulegt og fenginn er fjöldi fyrirlesara um fjölbreytilegustu efni.

ÍMA
Íþróttafélag MA stendur á gömlum merg. Það stendur fyrir alls kyns íþróttakeppni innan skóla og milli skóla og hefur aðstöðu í Fjósinu, íþróttahúsi skólans, og í Íþróttahöllinni.

TóMA
Tónlistarfélag MA stendur fyrir ýmiss konar tónlistarstarfi og tónleikahaldi og tónlistarkynn-ingum, meðal annars Viðarstauki, sem er popp-rokk hátíð með rafmögnuðum hljóðfærum og Stiðarvauki, sem er órafmögnuð tónlistarsamkoma.

LMA
Leikfélag MA er elsta félag skólans og hefur að jafnaði leiklistarnámskeið og sýnir eitt leikrit árlega, sjónleik eða söngleik. Meðal annars má nefna söngleikina Kabarett, Hárið og Chicago og sjónleikina Sweeney Todd og Draum á Jónsmessunótt. Þá hefur LMA tekið þátt í kvöldvökum og skemmtiatriðum á árshátíð, unnið með myndbandafélaginu og fleirum, svo eitthvað sé nefnt.

MyMA
Myndbandafélag MA hefur gengist fyrir upptökum á atburðum í félags- og skólastarfi, gert kynningarmyndir og staðið fyrir stuttmyndagerð. Hjá MyMA er aðstaða til að klippa og setja saman myndefni

FálMA
Félag áhugaljósmyndara sér um að taka myndir af öllum atburðum skólans og stendur fyrir námskeiðum í ljósmyndun og myndvinnslu.

Kór MA
Kórinn er blandaður og hefur meðal annars gefið út hljómdisk með íslenskum þjóðlögum í vönduðum útsetningum. Kórinn kemur fram nokkrum sinnum á ári og tengist ýmsu örðu félagslífi.

Gettu betur 
Menntaskólinn á Akureyri hefur lengi tekið þátt í Gettu betur og unnið hljóðnemann þrisvar, 1991 og 1992 og 2006. Liðið er nú skipað tveimur stúlkum og einum strák, en það er óvenjulegt strandhögg kvenna í þessu karlaveldi. Takmarkið er jafnan að vinna en að minsnta kosti komast í sjónvarpshluta keppninnar.

Söngkeppni MA 
Söngkeppni MA er orðin einn stærsti atburðurinn í félgaslífinu. Úrslitakeppni söngkeppni framhaldsskólanna hefur þrisvar farið fram á Akureyri, að hluta eða í heild í umsjá nemenda MA. MA hefur einu sinni átt sigurvegara í Söngkeppni framhaldsskólanna og öðru sinni orðið hlutskarpast í símakosningu um besta atriðið.

Innskráning