Runninn er út frestur til þess að lýsa yfir framboði til embætta skólafélagsins Hugins. Samkvæmt ákvörðun fastanefndar verður listi yfir frambjóðendur ekki gerður sýnilegur fyrr en á miðnætti, aðfaranótt mánudagsins 7. maí, og verður hann þá aðgengilegur hér á muninn.is.
Ritstjórn Munins óskar frambjóðendum öllum góðs gengis í kosningabaráttunni og minnir jafnframt á að allar auglýsingar og annar áróður (þ.á.m. Facebook) er stranglega bannaður fyrir miðnætti, aðfaranótt mánudagsins 7. maí.
Þau framboð sem ekki virða þessa reglu mæta viðurlögum og jafnvel ógildingu.


