4.G – fótboltameistarar MA

19. March 2012 kl. 08:59 | | Fréttir |

4.G vann síðastliðinn föstudag hið árlega fótboltamót MA. ??27 bekkir voru skráðir til leiks en barist til síðasta blóðdropa og var spennan í höllinni áþreifanleg. Mikið keppniskap var í mönnum og létu þeir heyra vel í sér ef ekki var farið eftir settum fótboltareglum. Vegna Gettu Betur keppninnar sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn föstudags forfölluðust sum lið, en stjórn ÍMA neyddist til að halda átta liða úrslitakeppnina þá vegna þess að höllin er upptekin tvo næstu föstudaga og hefðu úrslitin þá þurft að fara fram um miðjan apríl. Til átta liða úrslita kepptu bekkirnir 1.D, 2.B, 2.U, 3.I, 4.G, 4.HI, 4.U og 4.F.? Hart var barist og var nokkuð um brot enda stig til íþróttameistara skólans í boði.? Þó sýndu flestir bekkir heiðarlega og íþróttamannslega hegðun.

Liðin sem mættu til undanúrslita voru ekki af verri endanum en þar mættust 2.B á móti 4.G , og 4.F á móti 4.U.
Lið 2.B skipuðu: Hjörtur Þór, Baldvin, Bjartur, Rakel og Orri.
Lið 4.F skipuðu Arna Sif, Egill, Ingólfur, Árni Arnar og Óli.
Lið 4.U skipuðu þau Freyr, Jóhannes, Hallur, Kristján, Sigurbjörg og Helga.
Lið 4.G skipuðu Villi, Silvía, Óli, Gulli og Jóhann Axel.

Leikur 2.B og 4.G var hörkuleikur þar sem barist með kjafti og klóm. Bæði lið sýndu mikla yfirburði í íþróttinni og var greinilegt að mikil reynsla bjó þar að baki. KR búningurinn og Argentínu landsliðstreyjurnar sýndu mikla tækni og yfirvegun í spili og skipulagðri sókn. Leikurinn varð æsispennandi og þegar venjulegum leiktíma lauk þurfti að efla til Gullmarks. Þegar nokkrar mínútur voru liðnar af framlengingu, kom upp atvik þar sem ákveðinn aðili í 4.G vildi fá aukaspyrnu en dómarinn dæmdi ekkert og lét leikinn halda áfram. 10 sekúndum seinna skoraði 4.G með glæsilegu skoti frá Óla (sem var markmaður í þessum leik) og lauk þar með viðureigninni 2-1 fyrir 4.G. Þótt lið 2.B hafi verið ósátt með þessi úrslit, geta þeir borið höfuðið hátt en það er greinilegt að verðandi fótboltameistarar finnast í bekknum.

4.F – 4.U var æsispennandi leikur. 4.F var fyrir því áfalli að missa sterkan leikmann af velli eða hann Óla. Hann hafði spilað allt mótið á tánum einum og þurfti því miður að fara útaf þar sem blóðslóðin elti hann um allan völlinn- enda engin miskunn sýnd á íþróttamótum ÍMA. 4.F lét þetta ekki á sig fá og spiluðu Arna Sif, Egill, Ingólfur og Árni, einum manni færri og héldu ótrauð áfram að sækja á 4.U allan leikinn. 4.U nýttu þau sér það til hins ítrasta að vera einum manni fjölmennari og komust yfir á þriðju mínútu. Þegar 30 sekúndur voru til leiksloka hafði 4.U skorað tvö mörk og var liðið þá búið að tryggja sér sæti í úrslitum.

Úrslitaleikurinn var ekki síðri en þar mættust 4.G og 4.U.? Leikurinn byrjaði með látum og var greinilegt að bæði lið ætluðu sér sigur. 4.G komst yfir strax á fyrstu mínútu en 4.U var langt því frá að vera hættur. Þreytan var þó ekki langt í burtu enda höfðu liðsmenn nýlokið erfiðum leik við 4.F. Samt börðust þeir upp á líf og dauða og áttu nokkur dauðafæri í seinni hálfleik en eitthvað varð til þess að boltinn vildi ekki fara í markið. Sumir töldu þar Óla kraftaverkamarkmann vera að verki en aðrir töldu óheppni Freys hafa haft áhrif á leikinn.  Á endanum vann 4.G sigur og var fagnað gríðarlega þegar leikurinn var flautaður af eftir 8 mínútur.

Nú hefur ÍMA staðið fyrir blakmóti, bandýmóti og fótboltamóti en eftir er frjálsíþróttamótið eina einstaklingskeppni ÍMA. Ef tími gefst til er ekki útilokað að haldin verði fleiri mót, á þeim 40 virku skóladögum sem eftir eru af önninni. Að lokum þakkar ?ÍMA nemendum skólans kærlega fyrir þáttökuna á fótboltamótinu!

Þangað til næst,
ÍMA- íþróttafélag MA


 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndin tengist fréttinni ekki nema að takmörkuðu leyti.



Innskráning