Gettu Betur: MA – Kvennó

16. March 2012 kl. 15:10 | | Fréttir |
Gettu Betur: MA - Kvennó

Í kvöld verður sýnd í sjónvarpinu viðureign Menntaskólans á Akureyri og Kvennaskólans í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna.

Fyrir hönd okkar MA-inga keppa þeir Hlöðver Stefán Þorgeirsson 3TX, Jóhann Óli Eiðsson í 4G og Þórir Steinn Stefánsson í 4F.  Fyrir hönd Kvennaskólans keppa þau Laufey Haraldsdóttir, Bjarni Lúðvíksson og Bjarki Freyr Magnússon (Heimild: kvenno.is.)

Því miður gátu ekki allir þeir sem vildu styðja við liðið farið með til Reykjavíkur en þeir sem vilja horfa á keppnina í góðra vina hópi er bent á að bein útsending frá keppninni verður í Kvosinni í kvöld, en keppnin hefst klukkan 20:10. Sjoppan verður opin og gríðarleg stemning.

Við óskum Gettu betur liðinu velgengni, suðurförunum góðrar skemmtunar og

ÁFRAM MA!



Innskráning