Nú líður að upphafi vorannar og hyggst Hagsmunaráð fagna því með skiptibókamarkaði. Tekið verður á móti bókum á miðvikudaginn kemur milli klukkan 13:00 – 15:00 og aftur á fimmtudaginn milli klukkan 16:15 – 18:00, í bæði skiptin fyrir framan sjoppuna. Markaðurinn sjálfur verður síðan haldinn á föstudeginum milli klukkan 15:00 – 16:30 í H9.
Af gefnu tilefni er bent á að nemendur hafa þegar fengið sendan lista yfir þær bækur sem tekið er á móti á skiptibókamarkaðnum í tölvupósti.
Á miðvikudaginn hefst skóli með prófsýningum og að nemendur yngri bekkja hitta umsjónarkennara.
- Nemendur í fyrsta og öðrum bekk mæta klukkan 9:00 á miðvikudeginum og hitta umsjónarkennara.
- Nemendur í 2. TUXY hitta eðlisfræðikennara klukkan 9:30 í M9.
Prófsýningar verða auglýstar á upplýsingatöflu í anddyri Hóla en eru að mestu leyti:
- Milli klukkan 9:30 - 11:00 fyrir annan bekk.
- Milli klukkan 11:00 – 12:30 fyrir þriðja og fjórða bekk.
Kennsla hefst síðan að fullu fimmtudaginn 2. febrúar.
Frekar upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans, www.ma.is.


