Í dag kom haustblað Munins út og í tilefni af því stóð ritstjórn blaðsins fyrir gleðidegi. Í morgun var boðið upp á kleinur og heitt kakó þegar nemendur mættu í skólann og í löngu frímínútum var boðið upp á tvær gerðir af kökum, kleinur og mjólk og að sjálfsögðu sjálft blaðið. Sigurvegari ljóðakeppninnar var tilkynntur en það er Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir í 3.F og óskum við henni innilega til hamingju með sigurinn, en hún hlýtur að launum ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar og gistingu þar á fjögurra stjörnu hóteli í próflokafríinu. Að auki fengu tveir heppnir MA-ingar 10.000 kr. gjafabréf frá Greifanum sem komið hafði verið fyrir í blöðum.
Blaðið verður aðgengilegt á heimasíðu Munins á næstu dögum.


