Fimmta október næstkomandi verður forvarnardagurinn haldinn og af því tilefni hefur verið efnt til myndbandasamkeppni sem nemendur geta tekið þátt í. Verðlaunin eru ekki af verri endanum eða 250.000 kr fyrir fyrsta sæti, 150.000 kr fyrir annað sæti og 100.000 kr fyrir þriðja sæti.
Allt um keppnina má finna á http://apps.facebook.com/taktuthatt/ og frekari upplýsingar um forvarnardaginn má finna á http://www.forvarnardagur.is/.


