Ævintýri ungs fólks í Lahti

14. maí 2010 kl. 11:46 | Daníel | Fréttir |
Ævintýri ungs fólks í Lahti

Dagana 28. júní. – 4. júlí 2010 næstkomandi verður haldið vinabæjamót í Lahti í Finnlandi. Vinabæir Akureyrar á hinum Norðurlöndunum auk Lahti eru Ålesund í Noregi, Randers í Danmörku og Västerås í Svíþjóð.

Þátttakendur og verkefni
Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16 – 20 ára, 17 fulltrúum frá hverju landi. Sérstaklega er leitað að fólki sem hefur tekið þátt í skapandi starfi og tómstundastarfi af einhverju tagi. Áherslur listasmiðjanna í ár eru á norrænt samstarf og menningu. Þema vikunnar er “Norden i världen ? Världen i Norden?”

Unnið verður með eftirfarandi flokka: Tónlist, kórsöng, brúðuleikhús, dans (frjáls tjáning) og búningahönnun.

Engin krafa er gerð um sérstaka kunnáttu nema varðandi tónlistina, allir geta verið með.

Að auki verða með í för fararstjórar og stjórnmálamenn frá Akureyrarbæ.

Gisting og ferðir
Gist verður í Yhteiskoulu í Lahti. Kostnaður er áætlaður krónur 30.000 fyrir ferðir til og frá Akureyri. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir mat á leiðinni, en öll þátttaka í mótinu, þar með talinn matur og gisting er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Áhugasamt ungt fólk á aldrinum 16-20 ára skráir sig hjá Maríu Jónsdóttur á Norrænu upplýsingaskrifstofunni. Netfang mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000.

Skráningarfrestur er til kl. 13:00 mánudaginn 17. maí n.k.

Akureyrarbær og Norræna upplýsingaskrifstofan

María Jónsdóttir
Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar
Leder Nordisk informationkontor
Netfang/e-post: mariajons@akureyri.is
hjemmeside: www.akmennt.is/nu

Norræna upplýsingaskrifstofan/Nordisk informationkontor
Kaupvangsstræti 23
600 Akureyri
Island.
Sími: 462 7000 Fax: 462 7007.


Helginn

Innskráning