Hér eru fjórar myndir sem sýna vítaverða misnotkun á bílastæðum skólans. Myndirnar voru teknar í morgun. Þrír bílanna, UH 867, YN 575 og UE 073, stóðu á akbrautinni að skólanum, við hlið merktra bílastæða, og ollu því að ekki var hægt að mætast og þarna hefði tæplega komist rútur eða slökkvibílar. Þetta er stórhættulegt. Fjórði bíllinn, TU 776, var á graseyju við hlið bílastæðis og má glögglega sjá hvernig grasið hefur þarna skemmst af þessari misnotkun. Tekið skal fram að nóg var af lausum bílastæðum skammt undan.






