Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands veitir styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Fyrir 2 árum fengu tveir stúdentar úr MA styrki úr sjóðnum, Anna Harðardóttir og Jan Eric Jessen. Í fyrra hlaut enginn úr MA styrk, en nú er að sjá hvort lukkan leikur við okkar fólk.


