Yndisfríða kona,
Í kvöld verður haldin kvöldvaka þér til heiðurs! Húsið opnar klukkan 19:30 en dagskráin byrjar stundvíslega klukkan 20:00. Það er um að gera að mæta snemma því boðið verður uppá myndatöku á staðnum, þar sem þú getur látið smella einni af þér og vinkonum þínum. Það verður mikið um dýrðir en sýnt verður myndband þar sem við komumst að því hvernig strákarnir í MA hugsa, tískusýning, leikur á milli árganga uppá glæsileg verðlaun, dregið verður úr happdrætti og á boðstólnum verða pizzur og gos.
Ekki láta þig vanta í kvöld, öllum stelpum skólans er boðið og það kostar einungis 300 krónur inn, sem er gjöf en ekki gjald.
Þema kvöldsins er hælaskór – svo mætið í slíkum
XOXO,
Stelpurnar í stjórninni og konukvöldsnefndi


