Hin árlega bekksagnakeppni í Gettu betur hefst miðvikudaginn 21. apríl klukkan 16:30 í H-stofum skólans. Keppnisfyrirkomulag er með þeim hætti að þrír eru saman í liði og verða að vera úr sama bekk. Hver bekkur má senda eins mörg lið og hann vill en fjöldatakmörkun er 32 lið alls í keppninni, þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst með nafni keppenda og bekk á netfangið magni@ma.is en skráningu lýkur klukkan 20:00 á morgun (þriðjudag)


