Þegar snjóa leysir kemur iðulega í ljós hversu illa nemendur skólans og heimavistarbúar ganga um lóðirnar og umhverfið. Rusl og drasl út um allt. Er það til dæmis eðlilegt að fólk skuli henda umbúðum og öðru rusli undir bíla sína og keyra svo í burtu? Er eðlilegt að stilla bíl upp á gangstétt til að gera við vélina, skilja svo eftir olíupolla á stéttinni og fleygja olíubrúsum og drasli upp að húsi? Nei. Það er ekki eðlilegt að gera nánasta umhverfi sitt að ruslahugum.
Miklum skaða valda nemendur og heimavistarbúar sem leggja bílum sínum og keyra utan bílastæða. Þessi landsspjöll eru ekki bara lýti heldur kostar heilmikð að lagfæra spólskemmdir í grasflötum á hverju ári. Hér má sjá hvernig ástandið er við nýja bílastæðið fyrir sunnan og ofan Möðruvelli. Nú væri réttast að skemmdarvargarnir gerðu vart við sig og borguðu fyrir viðgerðirnar sjálfir. Vonandi hafa þeir manndóm í sér til þess.


