Lagabreytingafundur verður haldinn á morgun (miðvikudaginn 14.) í Kvosinni klukkan 14:40. Þeir sem vilja mæta á fundinn fá frí í tíma til þess og því hvetjum við sem flesta til að mæta og kjósa um breytingartillögurnar.
Allir nemendur sem eru meðlimir í skólafélaginu Huginn hafa atkvæðisrétt og er öllum frjálst að taka til máls.
Þeir sem mæta á fundinn fá að hlýða á mikilvægustu tilkynningu vetursins fyrstir manna!


