Lagið í „Í minni mínu“ sigraði í kvöld söngkeppni Menntaskólans á Akureyri 2010. Söngkeppnin í ár fór fram í Kvos skólans en þar var breyting á því undanfarin ár hefur hún verið haldin í KA-heimilinu. Heppnaðist hún afar vel og voru vel yfir 600 manns á svæðinu. Umsvif keppninnar hefur aukist ár frá ári. Sýningin í ár var afar glæsileg og engu til sparað. Skapaðist skemmtileg stemming í Kvosinni og var gaman að heyra Sverri Pál bjóða keppnina heim á ný í Kvos skólans.
Lagið „Í minni mínu“ er frumsamið af Stefáni Erni Valmundarsyni og Darri Rafn Hólmarsson samdi textann við það. Lagið stóð uppúr í kvöld og var gaman að sjá að lagið vann einnig símakosninguna sem allir gátu tekið þátt í. Lagið var því ótvíræður sigurvegari kvöldsins og voru flestir ef ekki allir sáttir við niðurstöðuna.
Flytjendur lagsins voru Darri Rafn sem rappaði og Rakel Sigurðadóttir sem söng.
Lagið hlaut miklar undirtektir í sal og var það án efa hápunktur kvöldsins.
Textinn eftir Darra er einstaklega fallegur en um leið átakanlegur en hann fjallar um atvik sem hafa haft mikil áhrif á hann og hvernig hann upplifði þau.
Vonandi fáum við að heyra sigurlagið hljóma eitthvað á næstunni en flestir bíða eftir að geta fengið að heyra það aftur.
Nú er bara að bíða og sjá en þetta lag hefur allt sem þarf til að vinna Söngkeppni Framhaldsskólanna 2010.
Mynd: Jóhanna Stefánsdóttir


Þetta er einfaldlega óendanlega töff samspil texta, tónlistar og tilfinninga. 17 stjörnur af 17 mögulegum! ;)
Takk fyrir hlý orð, Danni og Bjarki!
svooo flott, einum of vel gert!