Eigum við að vera íþróttaskóli ársins?

18. febrúar 2010 kl. 21:41 | Sverrir Páll | Fréttir |

Alla vikuna frá mánudeginum 22. febrúar til föstudagsins 28. febrúar er frítt fyrir alla nemendur skólans í sund. Framvísa þarf í afgreiðslu sundlaugarinnar skólaskírteini eða einhverju öðru sem sannar að þið eruð í MA. Takmarkið er að allir nemendur MA syndi a.m.k. 200 metra hvern einasta virkan daga alla þessa viku. Umsjónarmenn bekkja halda saman skrá yfir mætingar og koma þeim til íþróttakennaranna í vikulokin. Þessi sundkeppni er þáttur í Íþróttavakningu framaldsskólanna.

Íþróttavakningin er mjög fjölbreytt og er auglýst á stóru neongrænu plakötunum sem hafa hangið víða um skólann. Þessi íþróttadagskrá er í höndum ÍMA og íþróttakennaranna og þeir hvetja ykkur af öllu afli til að vera virk og vinna þessa keppni. Í fyrra fór titillinn Íþróttaskóli ársins að Laugarvatni. Það væri ekki óýtt ef MA stæði uppi sem Íþróttaskóli ársins 2010.

Íþróttavakningin er í samvinnu framhaldsskólanna, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaganna.


Helginn

Innskráning