16. febrúar 2010 kl. 22:27 | Sverrir Páll | Fréttir |

Viltu komast til Þýskalands í sumar?

Félag þýskukennara á Íslandi efnir til þýskuþrautar, samkeppni meðal framhaldsskólanema í þýskukunnáttu. Þýskuþrautin 2010 verður í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 24. febrúar kl. 10.00 – 11.30.

Aðalverðlaun í þrautinni eru þriggja til fjögurra vikna dvöl í Þýskalandi sumarið 2010 með mikilli dagskrá. Einnig verða veitt nokkur bókaverðlaun.

Nemendur MA hafa árum saman tekið þátt í þýskuþrautinni og margir hafa unnið til verðlauna. Síðast hlaut Bjarki Þórðarson í 4. bekk A verðlaun og fór í starfs- og námsdvöl í Þýskalandi síðastliðið sumar.

Þýskukennarar veita nánari upplýsingar um þrautina og auglýsingar verða hengdar upp í skólanum, en meðal þátttökuskilyrða er að þátttakandi sé íslenskur ríkisborgari, fæddur á árunum 1990-1994, hafi lært þýsku í a.m.k. 1½ ár og eigi eftir a.m.k. eina önn í skólanum.

Nemendur eru hvattir til að taka átt í þýskuþrautinni því að í skólanum eru örugglega margir sem gætu unnið til verðlauna.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • MySpace
  • StumbleUpon
  • email


UNAK

Lokað fyrir athugasemdir.

Innskráning