Japönsk yfirvöld bjóða upp á kynnisdvöl í Japan, annaðhvort 5 vikna dvöl, 20. júní til 25. júlí í sumar, eða 5 mánaða dvöl, frá 15. ágúst 2010 til 5. janúar 2011.
Styrkurinn nær til ferðakostnaðar, skólakostnaðar og dvalar á japönsku heimili, en annan kostnað verða styrkþegar sjálfir að greiða. Þeir sem til greina koma skulu vera á aldrinum 15-18 ára.
Lestu meira, þar eru allar upplýsingar í boðsbréfi Japana og leiðbeiningar um umsóknir.
Styrkur til framhaldsskólanema til námsdvalar í Japan 2010
Með það að markmiði að ýta undir nemendaskipti og auka gagnkvæman skilning milli Japans
og Evrópu, bjóða stjórnvöld í Japan nú upp á skiptinámsdvalir fyrir evrópska
framhaldsskólanema í Japan. Annars vegar er boðið upp á styttri 5 vikna dvöl og hins vegar
lengri 5 mánaða dvöl fyrir styrkþega. Á meðan að á dvölinni stendur, munu styrkþegar sækja
japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í
Japan.
Fyrir árið 2010 verður tekið við umsóknum um bæði lengri og styttri námsdvöl. Tveir
íslenskir nemendur fá styrk til styttri námsdvalar. Enn er óákveðið hversu margir munu hljóta
styrk til lengri námsdvalar.
Upplýsingar um námsdvöl
Styttri námsdvöl
Námsdvöl hefst 20. júní 2010 og tekur endi 25. júlí 2010.
Styrkþegar munu sækja tíma í japönskum framhaldsskóla, fara í ferðir til ýmissa svæða í
Japan og dveljast á japönsku heimili.
Lengri námsdvöl
Námsdvöl hefst 15. ágúst 2010 og tekur endi 5. janúar 2011.
Styrkþegar munu sækja tíma í japönskum framhaldsskóla, dveljast á japönsku heimili og taka
þátt í ýmsum viðburðum.
Að sækja um
1. Umsækjandi skyldi:
(a) vera 15-18 ára frá og með 1. apríl 2010.
(b) vera íslenskur ríkisborgari.
(c) vera líkamlega og andlega heilsuhraustur.
(d) hafa grunnþekkingu á japanskri tungu og menningu, ellegar einbeittan áhuga á að
læra tungumálið og kynnast menningunni.
(e) geta tjáð sig skilmerkilega á ensku.
(f) geta lagað sig að daglegu lífi á japönsku heimili.
(g) ekki hafa nein föst áform um að ferðast til Japan í náinni framtíð.
(h) ekki vera með japanskan ríkisborgararétt.
2. Vélritaðri umsókn um skiptinámsdvöl skal skilað til Sendiráðs Japans á Íslandi eigi síðar
en 8. febrúar 2010. Sendiráðið mun meta innsendar umsóknir og standa að viðtölum við
umsækjendur sem koma til greina. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sendiráðsins:
http://www.is.emb-japan.go.jp/
3. Japönsk stjórnvöld munu standa að greiðslu ferðakostnaðar milli Íslands og Japans,
útgjalda vegna skipulagðra ferða á meðan á dvölinni stendur og alls tilfallandi kostnaðar
vegna skólagöngu í japönskum framhaldsskóla. Styrkþegar skyldu sjálfir standa straum af
öðrum kostnaði.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá:
Sendiráði Japans á Íslandi
Sími:510-8600
Fax: 510-8605
Tölvupóstur:
japan@itn.is (á íslensku)
tomoko.daimaru@internet.is (á ensku)
