Gettu betur lið okkar sigraði í kvöld sína fyrstu viðureign á móti Menntaskólanum á Ísafirði.
Liðið í vetur skipa Gunnar Kristjánsson 4Y., Einar Bessi Gestsson 3X. og Nína Arnarsdóttir 4Y.
Það var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra keppnina og vorum við með 20 stig eftir hraðaspurningarnar meðan að MÍ var með 13 stig. Leiðin lá þaðan að sigrinum og lék ekki nokkur vafi á því hvort liðið myndi vinna.
Dregið var í næstu umferð og kom í ljós að mánudaginn 25. janúar mætum við liði FSu.
Glæsilegur árangur hjá Gunna, Nínu og Bessa og óskum við þeim til hamingju með sigurinn.
Leiðrétting: Keppnin fer fram 27. janúar klukkan 19.30.


