Nú er farið að styttast í skólaskírteinin og er ég viss um að allir vilji hafa myndirnar á þeim pottþéttar. Við munum notast við myndirnar sem voru teknar af ykkur fyrr í haust, en við viljum vera pottþétt á að allar myndir séu réttar.
Því viljum við biðja ykkur, nemendur góða, að athuga hvort það sé ekki örugglega rétt mynd af ykkur hérna á vefnum. Ef þið eruð ekki búin að láta okkur vita og það er röng mynd eða það vantar bara alfarið mynd, sendið þá póst á axel@muninn.is með fullu nafni, bekk og athugasemd varðandi myndina. Ef það er önnur mynd í staðin fyrir ykkar, látið okkur þá vita hvaða mynd það er, ef þið vitið það. Ef þið hafið einhverjar aðrar fyrirspurnir sambandi við myndir í nemendaskránni, hikið þá ekki við að senda póst.
Endilega látið bekkjarfélaga vita og skoðið jafnvel myndir vina ykkar, það er ótrúlega mikilvægt að allir hafi rétta mynd á skírteininu sínu!


