Eins og glöggir einstaklingar hafa tekið eftir hefur Heimspeki- og Menningarfélagið párað ljóð á vegg einn milli stofu fjögur og fimm á Hólum.
Ljóðið er eftir menntskælinginn Grétu Kristínu og er gert í tilefni dags íslenskrar tungu. Ljóðið máluðu þau Alma Rún Vignisdóttir, Guðrún Veturliðadóttir og Inga Bryndís Árnadóttir ásamt ykkar einlæga.
Vonumst við til að hafa fleiri uppbrot í vetur og biðjum þá sem eru áhugasamir að senda okkur póst á 26tod@ma.is.
Fyrir hönd HomMA,
Þorvaldur Örn.


