Tónleikar í Kvosinni í kvöld!

12. nóvember 2009 kl. 10:20 | Daníel | Fréttir |

Það er loksins komið að því….

Stórtónleikar tónlistarfélagsins TóMA eiga sér stað og koma þar fram hljómsveitir sem eru að tröllríða tónlistarsamfélaginu á Íslandi um þessar mundir.

Agent Fresco, Bróðir svartúlfs og Vicky koma norður og stíga á stokk í Kvosinni, MA og það ætti ENGINN að láta það tækifæri fram hjá sér fara!

Miðaverðið er 1000 kr og miðar eru seldir við hurð.

Húsið opnar kl 19:30 og vert er að nefna að strákarnir í Tyrfing, sem unnu Viðarstauk, hljómsveitarkeppni MA munu, hita upp rétt fyrir tónleikana. Tónleikarnir sjálfir byrja síðan kl. 20:00!

Troðfyllum Kvosina og njótum þess að geta farið á almennilega tónleika í skólanum!
Kveðja TóMA


Helginn

Innskráning