Skemmtihelgi á vegum UMFÍ

07. nóvember 2009 kl. 23:55 | Sindri | Fréttir |

Næstu helgi verður haldin Skemmtihelgi í húsnæði Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal. Ungmennaráð UMFÍ hefur staðið fyrir svipuðum helgum áður og hefur aðsóknin verið góð. Í þetta skipti komast aðeins 25 manns að og fyrstir koma fyrstir fá! Eina sem fólk þarf að gera er að senda upplýsingar um nafn, skóla og símanúmer á netfangið ungmennarad@umfi.is og helst sem fyrst. Allur pakkinn er fólki að kostnaðarlausu, eina sem fólk þarf að gera er að koma sér á staðinn.

Skemmtihelgin er auðvitað að sjálfsögðu fyrir fólk sem vill skemmta sér ÁN ALLRA VÍMUEFNA!!

Ef fólk hefur einhverjar spurningar er alltaf hægt að spyrja á ungmennarad@umfi.is

Takk fyrir,
Ungmennaráð UMFÍ.


Helginn

Innskráning