Huginn

15. apríl 2010 kl. 09:32 | Gísli Björgvin | Huginn |

Karlakvöld í kvöld

Strákar! Það er komið að því! Sæktu wife beater, ég skal skít’ann út, það er karlakvöld í kvöld! Vídeó, pizzur og uppistand. Sötrum sódadrykk, deyfum ljósin, það er karlakvöld í kvöld! Karlmannlegt, hvað sem það kostar (bara 300 kall inn). Þið heyrðuð rétt. Finnið skítuga wife beaterinn, mætið með 300 kall í Kvosina og þið fáið skemmtun sem enginn gleymir. Ógleymanleg viðtöl við skinkur skólans, hinn árlegi pizzuslagur, stelpur færa þér gosið, uppistand, keppnir, Gummi Frið og margt fleira! Deila með [...]

11. apríl 2010 kl. 18:28 | Gísli Björgvin | Fréttir, Huginn | 1 athugasemd |

Darri, Rakel og Stebbi í 2. sæti!

Krakkarnir „okkar“, þau Darri Rafn, Rakel og Stefán Ernir, ásamt strengjasveitinni okkar, lentu í 2. sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Höllinni í gær. Stemmingin var ógleymanleg og flutningur krakkanna stórkostlegur. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út þegar krakkarnir stigu og svið og undirritaður staðfestir að tár sáust á hvarmi Menntskælinga í Höllinni þegar þau [...]

07. apríl 2010 kl. 12:05 | Gísli Björgvin | Huginn, Viðburðir |

Karlakvöld

[ 15. apríl 2010; 20:00 to 22:00. ] Já strákar, það er komið að því. Sæktu wife beater, ég skal skít'ann út, það er karlakvöld í kvöld! Vídeó, pizzur og uppistand. Sötrum sódadrykk, deyfum ljósin, það er karlakvöld í kvöld! Karlmannlegt, hvað sem það kostar (bara 300 kall inn). Þið heyrðuð rétt. Finnið skítuga wife beaterinn, mætið með 300 kall í Kvosina og þið fáið skemmtun sem enginn gleymir. Ógleymanleg viðtöl við skinkur skólans, hinn árlegi pizzuslagur, stelpur færa þér gosið, uppistand, keppnir, Gummi Frið og margt fleira!

07. mars 2010 kl. 14:08 | Einar Tryggvi | Huginn |

Ratatoskur 15. og 16. mars

Nú fer að líða að Ratatosk og leitum við því til ykkar, nemenda, kennara og starfsfólks. Ef þú getur hugsað þér að vera með námskeið eða fyrirlestur eða dettur einhver í hug sem getur verið með námskeið á Ratatoski skaltu endilega hafa samband við okkur. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Hafið samband sem fyrst á huginn[hjá]ma.is Deila með öðrum:

07. janúar 2010 kl. 21:47 | Einar Tryggvi | Fréttir, Huginn |

Skráning í söngkeppni

Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri verður haldin þann 24. febrúar næstkomandi og verður sú flottasta hingað til ! Skráning hefst strax þegar skóli hefst á ný eftir prófloka frí þann 1. febrúar og mun standa yfir í takmarkaðan tíma. Það verður fjöldatakmörkun í keppnina þannig við hvetjum alla til að skrá sig sem allra fyrst og nýta [...]

11. nóvember 2009 kl. 22:55 | Einar Tryggvi | Fréttir, Huginn | 4 athugasemdir |

Hugins bolir!

Hugins bolirnir eru komnir og verða til sölu í Kvosinni í vikunni. Þeir eru til í öllum stærðum og í bleiku, grænu og svörtu. Þeir sem skrifuðu sig á áhugalistana endilega munið að taka með pening í skólann og festið kaup á einum slíkum. Það er til nóg af bolum þannig að þeir sem skrifuðu sig ekki [...]

Innskráning