Fréttir

24. desember 2011 kl. 14:04 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Gleðileg jól!

Gleðileg jól!

20. desember 2011 kl. 11:10 | Sverrir Páll | Fréttir |

Gleðileg jól

Gleðileg jól

13. desember 2011 kl. 20:54 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Muninn er kominn út!

Muninn er kominn út! Í dag kom haustblað Munins út og í tilefni af því stóð ritstjórn blaðsins fyrir gleðidegi. Í morgun var boðið upp á kleinur og heitt kakó þegar nemendur mættu í skólann og í löngu frímínútum var boðið upp á tvær gerðir af kökum, kleinur og mjólk og að sjálfsögðu sjálft blaðið. Sigurvegari ljóðakeppninnar var tilkynntur [...]

08. desember 2011 kl. 19:05 | Sverrir Páll | Fréttir |

Nemendur MA verða í Sjónvarpinu á sunndagskvöld

Á sunnudaginn verður sýnt innslag í sjónvarpsþættinum Landanum á RÚV þar sem fjallað er um dvalar – og hjúkrunarheimili framtíðarinnar. Nokkrir nemendur M.A. voru fengnir til þess að tjá sig um málið og svöruðu þeir til að mynda spurningum á borð við hvernig þeir sjá ellina fyrir sér og hvort þeir geti hugsað sér að [...]

06. desember 2011 kl. 10:17 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Myndir frá Árshátíð

Myndirnar frá árshátíðinni eru nú til sölu á: http://myndir.muninn.is/ Dálítið álag er á vefþjóninum meðan allir eru að reyna skoða þær svo um er að gera að reyna aftur ef síðan hleðst ekki inn. Pöntunarfrestur er til 13. desember og hægt verður að nálgast myndirnar í Kvosinni þann 14. desember.

29. nóvember 2011 kl. 18:51 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Árshátíð 2011


23. nóvember 2011 kl. 17:09 | Sverrir Páll | Fréttir |

Fyrirlestur um tölvunarfræði

Á morgun, fimmtudag, kl. 10:00 stundvíslega verður fyrirlestur í M9. Hann er ætlaður nemendum á þriðja og fjórða ári á náttúrufræðibraut. Fyrirlesari verður Björn Þór Jónsson deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík og MA stúdent. Lesið nánar um þetta í tölvupóstinum og nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri.

17. nóvember 2011 kl. 10:49 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

Skilafrestur í ljóðakeppninni að renna út!

Óðum styttist í að skilafrestur til að senda inn ljóð í ljóðasamkeppni Munins renni út en MA-ingar geta sent inn ljóð á netfangið ljod@muninn.is fram til miðnættis núna á föstudag. Þá verða ljóðin send nafnlaust til dómefndarinnar sem velur sigurljóð, en dómnefndin er skipuð íslenskukennurunum við skólann sem og skólameistara. Engin takmörk eru fyrir fjölda ljóða sem hver og [...]

14. nóvember 2011 kl. 21:30 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

Rímnakvöld á Gamlasal

Í kvöld var haldið rímnakvöld fyrir þriðjabekk á Gamlasal Menntaskólans sem íslenskukennarar stóðu fyrir í tilefni vísnabókaverkefnisins sem þriðjubekkingar glíma við um þessar mundir. Fram komu þau Rósa, Þór, Kristín og Georg frá kvæðamannafélaginu Gefjuni og fluttu rímur og kvæði fyrir viðstadda. Samkoman var vel sótt og mættu meðal annars skólameistari og frú.

10. nóvember 2011 kl. 16:20 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir, VefTV |

Brunnárhlaup og heilsueflandi framhaldsskóli

Brunnárhlaup og heilsueflandi framhaldsskóli Myndband frá Brunnárhlaupi 2011

02. nóvember 2011 kl. 14:19 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

Utanlandsferð – Ljóðasamkeppni Munins

Utanlandsferð - Ljóðasamkeppni Munins Skólablaðið Muninn blæs til ljóðasamkeppni. Allir MA-ingar geta sent inn ljóð í keppnina en þau þurfa að vera á íslensku og samin af þeim sem sendir þau inn en að öðru leyti ríkir frelsi um þau og dómnefnd fær þau einföldu fyrirmæli að velja besta ljóðið. Dómnefnd er skipuð íslenskukennurum og skólameistara sem verður formaður dómnefndar. Senda [...]

02. nóvember 2011 kl. 12:41 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

Tónlistarveisla TóMA

Tónlistarfélag MA stendur fyrir tónlistarveislu í Kvosinni á morgun, 3. nóvember, kl. 19:30 en húsið verður opnað 19:00. Fram koma hljómsveitirnar Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Buxnaskjónar og Postartica. Aðgangseyrir verður 1000 krónur fyrir meðlimi í Hugin og Þórdunu en 1500 fyrir aðra gesti.

01. nóvember 2011 kl. 21:22 | Sverrir Páll | Fréttir |

11.11.11. Norrænn loftslagsdagur 2011

Norræna ráðherranefndin stendur fyrir Norræna loftslagsdeginum 2011 í samvinnu við Mennta- og menningarráðuneyti Íslands. Hér er dagskráin: Nordisk Klimadag 2011 IS. Verkefni fyrir nemendur framhaldsskóla í tilefni Norræna loftslagsdagsins er hér: Verkefni fyrir framhaldsskóla.

30. október 2011 kl. 21:32 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Heimkoma menningarferðarfara

Í kvöld snéru heim frá höfuðborginni örþreyttir menningarferðarfarar. Fyrir sunnan aðhöfðust menntskælingar margt og mikið en förin hófst á stæði MA milli 2-3 á föstudeginum. Keyrt var beinustu leið suður með stuttu stoppi í Staðarskála. Þegar komið var suður var haldið beint í Flensborgarskóla þar sem við áttust MORFÍS lið MA og Flensborgar, en eins [...]

29. október 2011 kl. 01:09 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

MA burstar Flensborg

MA burstar Flensborg Morfíslið MA bar sigur úr bítum í MORFÍS keppni sem fór fram í kvöld í Flensborgarskóla. Stigin voru mjög jöfn en lið MA vann með 13 stigum. Ræðumaður kvöldsins var Halldór úr liði Flensborgarskóla. Það var brjáluð stemning í salnum og klapplið MA stóð sig að sjálfsögðu með prýði. Hasta la victoria MA!

20. október 2011 kl. 13:22 | Sverrir Páll | Fréttir |

Myndbandskeppni: Tungumálin hafa orðið

Taktu upp myndband um þig og tungumál þín. Nýr iPad2 í vinning. Í tilefni af evrópska tungumáladeginum hefur Evrópuverkefnið Language Rich Europe og EUNIC í Brussel hrundið af stað samkeppni sem gengur út á að finna tungumála-sendiherra sem sýna fram á mikilvægi þess að kunna fleiri tungumál, með því að taka upp stutt myndband um tungumálin [...]

18. október 2011 kl. 22:23 | Skólablaðið Muninn | Fréttir |

Kvöldvaka

Sigurliðið í bekkjarkeppninni í Hjartslætti Í kvöld hélt skólafélagið vel sótta og skemmtilega kvöldvöku í Kvosinni. Skemmtiatriðin voru frumleg og má t.a.m. nefna bekkjarkeppni í samkvæmisleiknum hjartsláttur, stórskemmtilega ræðukeppni Morfíssnillinganna Dags Þorgrímssonar og Sigurgeirs Ólafssonar en umræðuefnið var Hildur Líf Hreinsdóttir. Reynsluboltinn Sigurgeir vann eftirmann sinn í formannsstóli Málfundafélagsins í æsispennandi fagnaðarlátakeppni. Einnig var haldin spurningakeppni á milli [...]

18. október 2011 kl. 12:58 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

MuninnTV

Hefur þig alltaf langað til að leika, klippa, leikstýra, skrifa handrit eða koma á einhvern hátt nálægt framleiðslu skemmtilegs efnis og birta það þar sem allur skólinn sér það? Ert þú með hugmynd að skemmtilegum þætti en vantar einhverja með þér, eða ertu alveg hugmyndalaus en langar að vera með? Þá viljum við heyra í [...]

14. október 2011 kl. 23:31 | Formaður ÍMA | Fréttir |

3.TX a.k.a. Texas Rangers, blakmeistarar MA

3.TX a.k.a. Texas Rangers, blakmeistarar MA 3.TX  kom sá og sigraði á blakmóti ÍMA í dag. Þau mættu 3.F í æsispennandi úrslitaleik þar sem 3.F var búin að vinna alla leiki sína fram að þessu. En tapaði með tveimur stigum, 21-23. Umfjöllun árganga: 4.árgangur sýndi fram á snilligáfu í búningavali. 3.árgangur sýndi fram á óvænta blakhæfileika. 2.árgangur sýndi sig voða lítið. 1.árgangur sýndi gríðarlega gott hugarfar! ÍMA þakkar [...]

Innskráning