Sverrir Páll

12. maí 2010 kl. 22:39 | Sverrir Páll | Fréttir |

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta HÍ

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands veitir styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Fyrir 2 árum fengu tveir stúdentar úr MA styrki úr sjóðnum, Anna Harðardóttir og Jan Eric Jessen. Í fyrra hlaut enginn úr MA styrk, en nú er að sjá hvort lukkan leikur [...]

12. maí 2010 kl. 14:53 | Sverrir Páll | Fréttir | 5 athugasemdir |

Misnotkun bílastæða

Hér eru fjórar myndir sem sýna vítaverða misnotkun á bílastæðum skólans. Myndirnar voru teknar í morgun. Þrír bílanna, UH 867, YN 575 og UE 073, stóðu á akbrautinni að skólanum, við hlið merktra bílastæða, og ollu því að ekki var hægt að mætast og þarna hefði tæplega komist rútur eða slökkvibílar. Þetta er stórhættulegt. Fjórði [...]

16. apríl 2010 kl. 14:10 | Sverrir Páll | Fréttir | 3 athugasemdir |

Skemmdir á lóð og umhverfi skólans

Þegar snjóa leysir kemur iðulega í ljós hversu illa nemendur skólans og heimavistarbúar ganga um lóðirnar og umhverfið. Rusl og drasl út um allt. Er það til dæmis eðlilegt að fólk skuli henda umbúðum og öðru rusli undir bíla sína og keyra svo í burtu? Er eðlilegt að stilla bíl upp á gangstétt til að [...]

18. febrúar 2010 kl. 21:41 | Sverrir Páll | Fréttir |

Eigum við að vera íþróttaskóli ársins?

Alla vikuna frá mánudeginum 22. febrúar til föstudagsins 28. febrúar er frítt fyrir alla nemendur skólans í sund. Framvísa þarf í afgreiðslu sundlaugarinnar skólaskírteini eða einhverju öðru sem sannar að þið eruð í MA. Takmarkið er að allir nemendur MA syndi a.m.k. 200 metra hvern einasta virkan daga alla þessa viku. Umsjónarmenn bekkja halda saman [...]

16. febrúar 2010 kl. 22:27 | Sverrir Páll | Fréttir |

Viltu komast til Þýskalands í sumar?

Félag þýskukennara á Íslandi efnir til þýskuþrautar, samkeppni meðal framhaldsskólanema í þýskukunnáttu. Þýskuþrautin 2010 verður í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 24. febrúar kl. 10.00 – 11.30. Aðalverðlaun í þrautinni eru þriggja til fjögurra vikna dvöl í Þýskalandi sumarið 2010 með mikilli dagskrá. Einnig verða veitt nokkur bókaverðlaun. Nemendur MA hafa árum saman tekið þátt í þýskuþrautinni og [...]

15. febrúar 2010 kl. 11:56 | Sverrir Páll | Fréttir |

Síðasti séns!

Í dag, 15. febrúar, er síðasti dagur til þess að sækja um jöfnunarstyrk á vorönn 2010! Eins og áður er hægt að sækja um styrkinn í gegnum heimabanka  og/eða Innu. Deila með öðrum:

04. febrúar 2010 kl. 12:03 | Sverrir Páll | Fréttir |

5. febrúar – Dagur stærðfræðinnar

Dagur stærðfræðinnar er 5. febrúar. Kíkið á http://flotur.ismennt.is/ Þar er spennandi efni fyrir marga. Deila með öðrum:

04. febrúar 2010 kl. 12:00 | Sverrir Páll | Fréttir |

Jöfnunarstyrkurinn – fyrir 15. febrúar

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Umsóknarfrestur vegna vorannar 2010 er til 15. febrúar næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Deila með öðrum:

18. janúar 2010 kl. 18:20 | Sverrir Páll | Fréttir |

Langar þig til Japans?

Japönsk yfirvöld bjóða upp á kynnisdvöl í Japan, annaðhvort 5 vikna dvöl, 20. júní til 25. júlí í sumar, eða 5 mánaða dvöl, frá 15. ágúst 2010 til 5. janúar 2011. Styrkurinn nær til ferðakostnaðar, skólakostnaðar og dvalar á japönsku heimili, en annan kostnað verða styrkþegar sjálfir að greiða. Þeir sem til greina koma skulu vera [...]

Innskráning