Veggverkið vil ég tileinka fábjánunum hans Þráins Bertelssonar.
F.h. HomMa
Þorvaldur Örn
Eins og nemendur og kennarar hafa tekið eftir hefur Heimspeki- og Menningarfélagið sett upp tvær innsetningar í kvosina, ein sem nær þvert yfir sviðið og hin sem nær upp úr kvosinni og í átt að sjoppunni. Þetta verk unnu þeir Jón Þór Sigurðsson, Helgi Vilberg og Friðgeir Jóhannes Kristjánsson sem allir eru nemendur við Myndlistarskóla Akureyrar. Verkin eru svokallaðar skynvillur og eru tveir punktar í skólanum þar sem formin sjást í sinni réttu mynd.
Við vonum að nemendur hafa gaman af þessu uppbroti og óskum ykkur góðs í byrjunar nýrrar annar.
F.h. Heimspeki- og Menningarfélagsins,
Þorvaldur Örn Davíðsson
Eins og glöggir einstaklingar hafa tekið eftir hefur Heimspeki- og Menningarfélagið párað ljóð á vegg einn milli stofu fjögur og fimm á Hólum.
Ljóðið er eftir menntskælinginn Grétu Kristínu og er gert í tilefni dags íslenskrar tungu. Ljóðið máluðu þau Alma Rún Vignisdóttir, Guðrún Veturliðadóttir og Inga Bryndís Árnadóttir ásamt ykkar einlæga.
Vonumst við til að hafa fleiri uppbrot í vetur og biðjum þá sem eru áhugasamir að senda okkur póst á 26tod@ma.is.
Fyrir hönd HomMA,
Þorvaldur Örn.
Fyrirlesturinn ber nafnið USA MY WAY: Hvar er fólkið ? og fjallar um tveggja ára ferðalag ljósmyndarans Kristjáns Logasonar um Ameríku.
Fyrirlesturinn verður í dag ( mánudaginn 16. nóvember) í Gryfjunni í VMA og aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Fyrirlesturinn hefstum kl 20:10 og stendur í u.þ.b 45 mín.
,,Árið 2006 lagði ég ásamt konu og hundi upp í tveggja ára ferð í húsbíl sem flutti okkur 60.000 kílómetra um 10 lönd í Norður og mið Ameríku.“
Nú fyrir helgi höfðu 31 manns staðfest mætingu í „Lystigarðs Larp“ á Facebook en Akureyri LARP comunity undir stjórn Ólafs Helga Thorarensen í 2.F, sem stóð fyrir viðburðinum.
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í Larpinu voru MA ingar en þessi skemmtun þeirra vakti meiri athygli en þeir höfðu búist við.
Nánar »
Næstu helgi verður haldin Skemmtihelgi í húsnæði Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal. Ungmennaráð UMFÍ hefur staðið fyrir svipuðum helgum áður og hefur aðsóknin verið góð. Í þetta skipti komast aðeins 25 manns að og fyrstir koma fyrstir fá! Eina sem fólk þarf að gera er að senda upplýsingar um nafn, skóla og símanúmer á netfangið ungmennarad@umfi.is og helst sem fyrst. Allur pakkinn er fólki að kostnaðarlausu, eina sem fólk þarf að gera er að koma sér á staðinn.
Skemmtihelgin er auðvitað að sjálfsögðu fyrir fólk sem vill skemmta sér ÁN ALLRA VÍMUEFNA!!
Ef fólk hefur einhverjar spurningar er alltaf hægt að spyrja á ungmennarad@umfi.is
Takk fyrir,
Ungmennaráð UMFÍ.