19. janúar 2012 kl. 20:17 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

MA 23 – Laugar 8

Í kvöld sigraði lið Menntaskólans á Akureyri lið Lauga  í spennandi Gettu Betur keppni. Í lok hraðaspurninga var staðan 14-8 fyrir MA og í lok keppninnar sigraði MA með 23 stigum gegn 8. Við óskum liðinu til hamingju með árangurinn og hlökkum til næstu keppni.

Þeir sem misstu af keppninni í útvarpinu geta hlustað á hana á heimasíðu ríkisútvarpsins innan skamms.


11.01.12 | Sverrir Páll | Fréttir |

Nemendasjóður MA

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Nemendasjóði Menntaskólans á Akureyri. Nemendasjóði er ætlað að styrkja nemendur MA (ekki utanskólanemendur eða nemendur í hlutanámi) sem glíma við fjárhagserfiðleika. Sjá nánar á Vef MA.
06.01.12 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir | 1 athugasemd |

Ritstýra Munins

Ritstýra Munins Hrefna Rún Magnúsdóttir var í gær sjálfkjörin ritstýra skólablaðsins Munins. Hún tekur við af Auðbergi Gíslasyni sem sagði af sér fyrir jól af persónulegum ástæðum. Hrefna er enginn nýliði í Muninn en hún var í ritstjórn skólaárið 2009-2010 og sinnti þá starfi auglýsingastjóra. Haustið 2010 tók hún við ritstjórastólnum og ritstýrði því haustblaði ásamt góðu fólki. Eftir útgáfuna [...]


24.12.11 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Gleðileg jól!

Gleðileg jól!
20.12.11 | Sverrir Páll | Fréttir |

Gleðileg jól

Gleðileg jól

15.12.11 | Guðmundur Vefstjóri | VefTV |

Kvosin – Fyrsti þáttur

Strákarnir í Kvosinni gera upp önnina í fyrsta þætti ársins.
13.12.11 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Muninn er kominn út!

Muninn er kominn út! Í dag kom haustblað Munins út og í tilefni af því stóð ritstjórn blaðsins fyrir gleðidegi. Í morgun var boðið upp á kleinur og heitt kakó þegar nemendur mættu í skólann og í löngu frímínútum var boðið upp á tvær gerðir af kökum, kleinur og mjólk og að sjálfsögðu sjálft blaðið. Sigurvegari ljóðakeppninnar var tilkynntur [...]

08.12.11 | Sverrir Páll | Fréttir |

Nemendur MA verða í Sjónvarpinu á sunndagskvöld

Á sunnudaginn verður sýnt innslag í sjónvarpsþættinum Landanum á RÚV þar sem fjallað er um dvalar – og hjúkrunarheimili framtíðarinnar. Nokkrir nemendur M.A. voru fengnir til þess að tjá sig um málið og svöruðu þeir til að mynda spurningum á borð við hvernig þeir sjá ellina fyrir sér og hvort þeir geti hugsað sér að [...]
06.12.11 | Guðmundur Vefstjóri | Fréttir |

Myndir frá Árshátíð

Myndirnar frá árshátíðinni eru nú til sölu á: http://myndir.muninn.is/ Dálítið álag er á vefþjóninum meðan allir eru að reyna skoða þær svo um er að gera að reyna aftur ef síðan hleðst ekki inn. Pöntunarfrestur er til 13. desember og hægt verður að nálgast myndirnar í Kvosinni þann 14. desember.

Innskráning